B úrslitum lokið í tölti og slaktaumatölti

  • 12. ágúst 2023
  • Fréttir
Næst síðasti dagurinn hafinn hér á Heimsmeistaramótinu í Hollandi.

Í dag verðar riðin b úrslit, 100 m. skeið, verðlaunaafhending fyrir kynbótahross og deginum lýkur á A úrslitum í fimmgangi í ungmennaflokki.

Fyrstu B-úrslit dagsins voru í tölti í ungmennaflokki en þar áttu Íslendingar enga fulltrúa. Þær enduðu jafnar Amanda Frandsen á Tinnu frá Litlalandi og Maria Gjellestad Bosvik á Tind fra Jakobsgården með 6,72 í einkunn og mæta því báðar í A úrslit á morgun.

Næst voru það B úrslit í slaktaumatölti og þar endaði efst Helen Klaas á Kolgrími vom Neddernhof og síðustu B úrslitin áður en farið er í 100 m. skeiðið voru í tölt T1. Kristján Magnússon á Óskari fran Lindeberg vann þau og mætir því í A úrslitin með Jóhönnu Margréti og Viðari á morgun. Gaman að segja frá því að Frakkar áttu fulltrúa í þessum úrslitum en það er langt síðan að þeir hafa átt knapa í úrslitum í tölti.

Niðurstöður

B úrslit – Tölt T1 – Ungmennaflokkur – Niðurstöður
1 Amanda Frandsen Tinna frá Litlalandi 6.72 – DK
1 Maria Gjellestad Bosvik Tindur fra Jakobsgården 6.72 – NO
3 Anna Sager Steggur frá Hrísdal 6.44 – AT
4 Esmee Versteeg Hugur frá Vestra-Fíflholti 6.39 – NL

B úrslit – Tölt T2 – Fullorðinsflokkur – Niðurstöður
1 Helen Klaas Kolgrímur vom Neddernhof 7.38 – DE
2 Oliver Egli Hákon frá Báreksstöðum 7.25 – CH
3 Gerrit Sager Kveikur frá Hrísdal 7.04 – AT
4 Jin Xing Wan Van Werven Kolbeinn fra Jespersgaarde 6.92 – BE
5 Nils Christian Larsen Gustur vom Kronshof 6.79 – NO

B úrslit – Tölt T2 – Fullorðinsflokkur – Niðurstöður
1 Kristján Magnússon Óskar från Lindeberg 7.61 – SE
2 Gabrielle Severinsen Tígull fra Kleiva 7.50 – NO
3 Agnes Helga Helgadottir Sigur fra Jakobsgården 7.33 – NO
4 Katie Sundin Brumpton Depill från Fögruhlíð 6.61 – FI
5 Pascale Kugler Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum 4.56 – FR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link