Kristján og Amanda unnu líka b úrslitin í fjórgangi
B úrslitum er lokið í fjórgangnum. Kristján Magnússon á Óskari fran Lindeberg vann b úrslitin í fullorðinsflokk en þeir unnu einnig b úrslitin í tölti fyrr í dag.
Amanda Frandsen á Tinnu frá Litlalandi vann b úrslitin í ungmennaflokki en þær unnu einnig b úrslitin í tölti fyrr í dag.
Næst á dagskrá eru B úrslit í fimmgangi en þeir Benjamín Sandur Ingólfsson á Júní frá Brúnum og Þorgeir Ólafsson á Goðasteini frá Haukagili, Hvítársíðu koma jafnir inn í 9-10. sæti. Eftir þeim eru A úrslit í fimmgangi í ungmennaflokki þar sem við eigum hana Glódísi Rún Sigurðardóttir á Sölku frá Efri-Brú en þær koma efstar inn í úrslitin.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr B úrslitunum í fjórgangi
B úrslit – Fjórgangur – Fullorðnir – Niðurstöður
1 Kristján Magnússon Óskar från Lindeberg 7.43 – SE
2 Dennis Hedebo Johansen Muni fra Bendstrup 7.37 – DK
3 Susanne Birgisson Króna von der Hartmühle 7.10 – De
4 Agnes Helga Helgadottir Sigur fra Jakobsgården 7.03 – NO
B úrslit – Fjórgangur – Ungmenni – Niðurstöður
1 Amanda Frandsen Tinna frá Litlalandi 6.83 – DK
2 Anna Sager Steggur frá Hrísdal 6.63 – AT
3 Maria Gjellestad Bosvik Tindur fra Jakobsgården 6.50 – NO
4 Paulien Rottiers Baldvin frá Sunnuholti 5.30 – BE
5 Lisa Leereveld Tindra von Hof Gladur 0.00 – NL
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH