Negla hjá Jóhönnu og Bárði

  • 13. ágúst 2023
  • Fréttir
Tölthornið til Íslands í fjórtánda sinn

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi eru Heimsmeistarar í tölti! Þetta er í 14. sinn sem knapi frá Íslandi vinnur Tölthornið og sjöunda mótið í röð.

Þetta voru svakaleg úrslit en strax eftir hæga töltið náði Jóhanna forustunni og hélt henni út öll úrslitin. Sys Pilegaard og Abel fra Tyrevoldsdal gáfu henni þó ekkert eftir. Þau áttu frábæra sýningu á greiðu tölti og uppskáru eina 10,0 fyrir það atriði. Þau enduðu í öðru sæti.

Þriðja var Lisa Schürger á Kjalari frá Strandarhjáleigu. Það var gaman að sjá að knapi frá Ungverjalandi var í A úrslitunum í tölti, Veronika Kremmer og Ísbjörn vom Vindstaðir, enduðu í 5. sæti en þetta er í fyrsta sinn sem Ungverjaland tekur þátt á Heimsmeistaramóti. Landið varð hluti af FEIF árið 2020.

1 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi 8.94 – Ísland
Hægt tölt 9.00 : 9.0 – 9.0 – 9.5 – 9.0 – 9.0
Hraðabreytingar 9.00 : 9.0 – 9.5 – 9.0 – 8.5 – 9.0
Greitt tölt 8.83 : 9.0 – 9.0 – 8.5 – 8.5 – 9.5

2 Sys Pilegaard Abel fra Tyrevoldsdal 8.72 – Danmörk
Hægt tölt 8.67 : 9.0 – 8.5 – 8.5 – 8.5 – 9.0
Hraðabreytingar 8.00 : 8.0 – 8.0 – 7.5 – 8.0 – 8.5
Greitt tölt 9.50 : 9.5 – 9.0 – 9.5 – 9.5 – 10.0

3 Lisa Schürger Kjalar frá Strandarhjáleigu 8.28 – Þýskaland
Hægt tölt 8.00 : 8.5 – 8.0 – 8.0 – 8.0 – 8.0
Hraðabreytingar 8.33 : 8.5 – 8.0 – 8.5 – 8.0 – 8.5
Greitt tölt 8.50 : 8.5 – 8.5 – 8.5 – 8.5 – 8.5

4 Viðar Ingólfsson Þór frá Stóra-Hofi 8.22 – Ísland
Hægt tölt 8.00 : 8.5 – 7.5 – 8.0 – 8.0 – 8.0
Hraðabreytingar 8.00 : 8.0 – 8.0 – 8.5 – 8.0 – 8.0
Greitt tölt 8.67 : 8.5 – 9.0 – 8.5 – 9.0 – 8.5

5 Veronika Kremmer Ísbjörn vom Vindstaðir 7.94 – Ungverjaland
Hægt tölt 8.00 : 7.5 – 8.0 – 8.0 – 8.0 – 8.5
Hraðabreytingar 7.83 : 7.5 – 8.0 – 8.0 – 7.5 – 8.0
Greitt tölt 8.00 : 8.0 – 7.5 – 8.0 – 8.0 – 8.0

5 Kristján Magnússon Óskar från Lindeberg 7.94 – Svíþjóð
Hægt tölt 8.00 : 8.0 – 8.0 – 8.0 – 8.0 – 8.5
Hraðabreytingar 7.83 : 7.5 – 8.0 – 8.0 – 7.5 – 8.0
Greitt tölt 8.00 : 8.0 – 8.0 – 8.0 – 8.0 – 8.0

7 Jamila Berg Dibi Toppur frá Auðsholtshjáleigu 5.39 – Svíþjóð
Hægt tölt 8.17 : 8.0 – 8.0 – 8.5 – 8.0 – 8.5
Hraðabreytingar 8.00 : 8.0 – 8.0 – 8.0 – 8.0 – 7.5
Greitt tölt HÆTTI KEPPNI : 0.0 – 0.0 – 0.0 – 0.0 – 0.0

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link