Skeiðmóti frestað og fært til
Á stjórnarfundi Meistaradeildarinnar nú í hádeginu var tekin sú ákvörðun að fresta Skeiðmóti deildarinnar um viku. Mótið fer þess í stað fram sunnudaginn 3. apríl kl. 14 á félagssvæði Sörla í Hafnarfirði.
Völlurinn í Hafnarfirði er sá völlur sem talinn er vera einna fyrstur valla á Suðurlandi til að vera undirbúinn fyrir keppni. En eins og veðrið hefur verið undanfarið telja heimamenn að hann verði ekki tilbúinn til kappreiða næsta sunnudag og því var þessi ákvörðun meðal annars tekin. En einnig er verið að hugsa um velferð hesta og knapa þar sem mikil hætta getur skapast þegar aðstæður eru ekki í besta lagi.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórn Meistaradeildar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH