Við hesthúshorn Sleipnis – Guðni Ágústsson skrifar
Alltaf léttist á manni brúnin þegar komið er frammá vorjafndægur, daginn tekið að lengja, bjart á morgnana og frammá kvöldið…
Þorrinn og Góan að baki og eins og við þekkjum með frú Góu hún hristir svuntuna sína og sendir okkur éljahragglanda og skapvonsku. Nú styttist í hana Hörpu og sumarmálin með fuglasöng og sauðburði í sveitinni. Páskarnir eru óvenjuseint en samkvæmt venju eru ferm-ingarbörnin að ganga útí lífið frjáls og flott. Stundum fá þau gjafir sem þeim hefur dreymt um lengi, hest eða hnakk eða folald já eða námskeið í reiðlist í reiðhöll hjá einhverjum meistaranum. Svo kemur hún Skerpla og dýrlegir vordagar með sumri og sól. Brúnin á hestamönnum léttist og reiðtúrarnir lengjast og reiðveganefndin hjá Sleipni skilar af sér góðum vetri og frelsi fyrir knapann á hestbaki. Við skynjum að það er angan í lofti, hvað er vinalegra en lyktin af sveittum gæðingi blönduð ilmi af hesthúsalyktinni góðu sem strákurinn í kvikmyndinni sagði þetta um þegar hann hitti sveitamanninn á barnum ný búinn að aka skarni á hóla eða skít á tún eins og Njáll forðum,,I love it.“ Nú er margur að undirbúa langferð á hestum um öræfi landsins í nóttlausri voraldar veröld. Vinahóparnir að festa sér fjallakofa eða bændagistingu. Enn aðrir fara með fólki sem af öryggi hefur gert út lengri og styttri ferðir um landið. Ég sá að forystumenn hrossabænda Kristinn Guðnason og fleiri komu saman í húsi Íshesta í Hafnarfirði á dögunum þar sem hinn tröllaukni Einar Bollason ræður ríkjum og hefur í áratugi verið hestamaður í fremstu röð og rekið með fjölskyldu sinni öflugt fyrirtæki í ferðaþjónustu, flutt þúsundir manna á hestum um landið þvert og endilangt. Einar hefur í þrjátíu ár kynnt hestinn og landið sem ævintýri og fjöldinn sem hefur ferðast með honum í gegnum tíðina og hans samstarfsbændum eru trúlega álíka margir og allir íslendingar til samans um eða yfir þrjú hundruð þúsund manns. Kristinn fór í Hafnarfjörð til að opna eina alheimsgáttina á veraldarvefnum. Þar geta menn um allan heim farið inná vefinn „Icehorse- Experience.is“ Þar sýna og bjóða Íslenskir bændur fólki í rafrænan reiðtúr. Ef við förum inná vefinn fáum við innsýn í það hvernig er að fara í hestaferðir um byggðir og óbyggðir okkar einstaka og fagra lands. Um allt land eigum við frábært fólk sem gaman er að ferðast með um landið,fólk sem kann landið segir sögur og skapar einstaka stemningu. Einn þessara garpa er Guðmundur Viðarsson í Skálakoti sem alltaf sér björtu hliðarnar og tækifærin. Þegar Eyjafjallagosið brast á undruðust menn orð hans „þú skilur- það eru tækifæri í þessu líka.“ Nú koma ferðamenn til að heimsækja fólkið og jökulinn sem sletti ösku á fantinn Gordon Brown og askan stöðvaði flug um alla Evrópu. Heimsækja þjóðina sem ætlar ekki að bera skuldir óreiðumanna úr einkabönkum og segir nei við icesave hinn 9 apríl. Ferðamenn koma og hitta Guðmund í Skála-koti, hestamanninn lífsglaða sem er hér uppi í horninu. Þeir munu bergja á olíunni úr repjunni hans Ólafs á Þorvaldseyri, og hvergi í víðri veröld er jafn fagurt á vorin og undir Eyjafjöllum.
Guðni Ágústsson
[email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH