„Þá er hinni árlegu folaldsýningu í Söðulsholti lokið. 39 folöld voru skráð til leiks. Mörg ansi vel ættuð undan hátt dæmdum merum og stóðhestum og mátti t.d. sjá folöld undan Spuna frá Vesturkoti, Möller frá Blesastöðum, Hrímni frá Ósi, Arð frá Brautarholti, Sædyn frá Múla. Að vísu er það nú oft folöldin undan ósýndum merum og einhverjum spennandi ungfola sem lenda á verðlaunapalli en það er náttúrlega það skemmtilega við þetta allt saman. Folöldin voru dæmd bæði fyrir byggingu og hæfileika og voru metnir 3 þættir í hvoru, en það voru frampartur, bolur og fóthæð í byggingu, og fas, hreyfinar og ganglag í hæfileikum. Dómari sýningarinnar var Valberg Sigfússon, ritari Arnar Ásbjörnsson og þulur var Lárus Hannesson.
Um kaffiveitingar sáu heiðurshjónin á Þverá þau Halldór og Áslaug og er alveg víst að enginn fór svangur heim.
Áhorfendaverðlaunin hlaut svo hún Saga frá Dalsmynni undan Kandís frá Litlalandi og Skrúðu frá Hömluholti eigandi Guðný Gísladóttir
Hérna koma svo úrsltin
5 efstu merfolöldin voru
1. Elding frá Ólafsvík,jörp
F. Ljóni frá Ketilstöðum
m. Perla frá Einifelli
ræk/Sölvi Konráðsson
eig/Óðinn Kristmundsson
2. Glódís frá Ólafsvík,brúnskjótt
f. Ljóni frá Ketilsstöðum
m. Fluga frá Bjarnarhöfn
rækt/eig Jónas Gunnarsson
3. Spæta frá Söðulsholti,rauðskjótt
F, Hákon frá Ragnheiðarsstöðum
M, Hildur frá Sauðárkróki
Rækt: Einar Ólafsson
Eig/ Söðulsholt ehf
4.Skotta frá Söðulsholti, rauðskjótt
F, Kapall frá Kommu
M, Lipurtá frá Söðulsholti
Rækt: Einar Ólafsson
Eig: JA vet ehf
5.Saga frá Dalsmynni, rauðskjótt
F: Kandís frá Litlalandi
M: Skrúða frá Hömluholtui
Rækt./eig: Guðný Linda Gísladóttir
5 efstu hestfolöldin voru
1. Amor frá Hjarðarfelli, Brúnskjóttur
Möller frá Blestastöðum
M,Venus frá Hofi
Rækt/eig Sigríður Guðbjartsdóttir
2. Strokkur frá Hrísdal, rauður/grár
F: Hrímnir frá Ósi
M: Elja frá Mosfellsbæ
Rækt./eig: Hrísdalshestar sf
3. Drafnar frá Grundarfirði
F, Albert frá Feti
M, Dagsvin frá Grundarfirði
Eig/ræk;Bjarni Jónasson
4.Toppur frá Fáskrúðarbakka, rauðskjóttur-höttóttur
F: Kandís frá Litlalandi
M: Ör frá Fáskrúðarbakka
Rækt./eig: Kristján Þór Sigurvinsson
5.Dynjandi frá Hallkelsstaðahlíð, rauður
F: Dynur frá Hvammi
M: Rák frá Hallkelsstaðahlíð
Rækt./eig: Guðmundur M. Skúlason,“ segir í tilkynningu frá Söðulsholti