Skilgreining gangtegunda verkefni LH
JENS EINARSSON:
Erindi Þorvaldar Kristjánssonar um gangtegundir á aðalfundi FEIF í Strasbourg var ekki um rannsókn hans á hreyfingafræði og gangtegundum hrossa, sem hann vinnur að á Hvanneyri. Um var að ræða kynningu á vinnu starfshóps LH um skilgreiningu á gangtegundum íslenska hestsins, sem er hluti af TaskForce verkefni FEIF.
Í frétt um aðalfund FEIF í Strasbourg í gær þar sem vitnað er í Gunnar Sturluson, varaformann FEIF, varð sá misskilningur að erindi Þorvaldar hafi verið byggt á umræddri rannsókn hans. Hið rétta er að hann var að kynna niðurstöður starfshóps LH um skilgreiningu gangtegunda íslenska hestsins, sem hann á sæti í ásamt Sigurbirni Bárðarsyni, Sigurði Ævarssyni og Gunnari Reynissyni.
TaskForce verkefni FEIF var sett á laggirnar fyrir nokkrum misserum og miðar að því að skilgreina allt regluverk FEIF og lýsingu á íslenska hestinum upp á nýtt, þar með talið gangtegundunum. Sigurður Ævarsson, varaformaður LH, segir að tildrög málsins séu þau að á aðalfundi FEIF í Malmö í fyrra hafi hann boðið TaskForce nefndinni að LH tæki að sér að skilgreina tölt og skeið.
„Hópurnn hefur lagt mikla vinnu í þetta verkefni, enda metnaðarmál hjá okkur að þessar aðalgangtegundir íslenska hestsins séu rétt skilgreindar. Í fyrrahaust kynnti ég svo vinnu okkar fyrir TaskForce nefndinni og niðurstaðan varð sú að við vorum beðnir um að taka að okkur allan pakkann, það er að segja að skilgreina allar gangtegundirnar, líka fet, brokk og stökk. Miðað við viðtökurnar sem kynningin fékk á aðalfundi FEIF þá sýnist mér að menn séu nokkuð sáttir. Það er rétt að taka fram að það voru ýmsir sem lásu yfir verkefnið, þar á meðal Eyjólfur Ísólfsson, sem kom með margar góðar ábendingar og tillögur,“ segir Sigurður Ævarsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH