Anton Páll Níelsson með sýnikennslu

  • 11. febrúar 2013
  • Fréttir
Anton Páll Níelsson með sýnikennslu

„Sýnikennsla 13.2.2013

Anton Páll Níelsson – Taumsambandið og almenn taumþjálfun!
 
Anton Páll verður með sýnikennslu á Sörlastöðum næsta miðvikudag, 13. febrúar, kl 20:00. Ástæða er til þess að hvetja allt hestafólk til að mæta á þennan viðburð þar sem Anton er einn vinsælasti reiðkennari landsins og fróðlegt að sjá hvernig hann þjálfar hestana sína. Anton er þekktur fyrir að halda líflegar sýningar sem koma efninu vel til skila.
 
Þetta er frábært tækifæri til að koma saman, hitta aðra hestamenn, fræðast og fá hugmyndir um komandi vetrarþjálfun.
 
Aðgangseyrir: 1000kr
 
Allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá Fræðslunefnd  
 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link