Aðalfundur FT 3.des.
Aðalfundur Félags tamningamanna fer fram föstudaginn 3. desember nk. á Kænunni í Hafnarfirði og hefst kl. 18…
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Víkingur Gunnarsson verða með kynningu á nýju BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum. FT félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í fundarstörfum.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
• Fundarsetning og skipun starfsmanna fundarins • Ávörp gesta • Skýrsla stjórnar • Reikningar • Umræður um skýrslu og reikninga • Kynning – Víkingur Gunnarsson • Matarhlé • Umræður um erindi Víkings • Kosningar • Önnur mál
Víkingur Gunnarsson deildarstjóri hrossaræktarbrautar Háskólans á Hólum verður með erindi um breytt fyrirkomulag á námi við hrossaræktarbraut. Eldri nemendur skólans sem og tilvonandi nemendur eru hvattir til þess að mæta ásamt verknámskennurum og kynna sér nýtt fyrirkomulag námsins.
Boðið verður upp á kvöldverð á fundinum og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna og taka þátt í fundarstörfum
Félag tamningamanna
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH