Aðalfundur HÍDÍ

  • 9. janúar 2013
  • Fréttir
Aðalfundur HÍDÍ

„Aðalfundur HÍDÍ verður í sal LH í Laugardal mánudagskvöldið 28.janúar kl.20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Vonandi mæta sem flestir,“ segir í tilkynningu frá stjórn HÍDÍ.

Þá hefur stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ hafa ákveðið að upprifjunarnámskeið verður annars vegar haldið miðvikudaginn 13.febrúar kl.17-22 í Reykjavík (nánari staðsetning auglýst síðar) og hins vegar sunnudaginn 3.mars kl.10-15 á Sauðárkróki.

„Einnig hefur verið ákveðið að halda nýdómaranámskeið í vor ef næg þátttaka næst – lágmark 15 manns.
Fyrri hluti námskeiðsins (bóklegt) yrði á sumardaginn fyrsta þann 25.apríl og skriflegt/munnlegt próf daginn eftir þann 26.apríl.
Seinni hluti námskeiðsins (verklegt+próf) yrði þá helgina 1.-.5.maí í tengslum við Reykjavíkurmótið í Víðidal.“
 
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu auglýst síðar – einnig er hægt að fylgjast með á vefsíðu félagsins www.hidi.is.
 
 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link