Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

  • 30. mars 2011
  • Fréttir
Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands

Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður fimmtudagskvöldið 31. mars kl. 20 í Hliðskjálf félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi.

„Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Kjósa á um formann en Sveinn Steinarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér áfram. Halldór Guðjónsson og Bertha Kvaran hafa tilkynnt að þau sjái sér ekki fært að sitja lengur í stjórn. Gestur fundarins verður að þessu sinni Sigurbjörg Þorsteinsdóttir Dr.Med.Sc. ónæmisfræðingur hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum en hún mun kynna nýjustu niðurstöður í rannsóknum á sumarexemi. Erindið nefnist: Sumarexem (smámýsofnæmi í hestum) möguleikar á meðferð.
        Rétt er að benda á að fundargerðir stjórnar eru aðgengilegar á slóðinni www.bssl.is en þar eru Hrossaræktarsamtökin með undirsíðu. Vonumst til að sjá ykkur sem flest á aðalfundinum,“ segir í tilkynningu frá stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link