Aðalfundur Meistaradeildar- Skýrsla stjórnar

  • 3. nóvember 2010
  • Fréttir
Aðalfundur Meistaradeildar- Skýrsla stjórnar

Aðalfundur Meistaradeildar var haldinn á Ingólfshvoli þann 02.nov…

Töluverðar breytingar urðu á stjórn deildarinnar:
Þeir sem gengu úr stjórn voru:
Finnur Ingólfsson
Rúnar, Örn og Hjörtur bjóða sig fram til varastjórnar
Ný stjórn Meistaradeildar:
Maríanna Gunnarsdóttir  (áfram)
Kristinn Skúlason
Margrét Tómasdóttir
Linda B. Gunnlaugsdóttir
Magnús Benediktsson
Varamenn: Rúnar Þór Guðbrandsson, Örn Karlsson og Hjörtur Bergstað
Rúnar Guðbrandsson formaður Meistaradeildar flutti skýrslu stjórnar og hér er hægt að lesa hana í megindráttum.
Skýrsla formanns:
Fundarstjóri og ágætu fundarmenn,
Vil byrja á því að þakka knöpum, liðseigendum, kostunaraðilum, starfsfólki og stjórn fyrir síðastliðið keppnistímabil, en það var þó nokkuð frábrugðið fyrri árum vegna óvenju slæmrar tíðar sem olli því að nokkuð var um tilfærslur á mótum og síðast en ekki síst, að ekki náðist að klára allar keppnisgreinarnar sökum hestapestarinnar.
Meistaradeildin er búin að festa sig rækilega í sessi og er það jákvætt að grunn hugmyndafræðin og fyrirkomulag hafi tiltölulega lítið breyst. En eins og menn vita þá var lagt upp með þetta keppnisfyrirkomulag til að auka umfjöllun um hestaíþróttir, vekja áhuga almennings á hestamennsku og búa til vettfang fyrir bestu hestaíþróttamenn landsins til að keppa sína á milli yfir lengri tíma og þar sem verðlaunafé væri tiltölulega hátt. Hugmyndafræðin gekk semsagt út á að:
–    Tekið er mið af fyrirkomulagi sem þekkt er fyrir árangur úr heimi íþróttanna.
–    Stig til meistaratignar.
–    Liðakeppni
–    Tiltölulega hátt verðlaunafé.
–    Sömu keppendur allt tímabilið gerir það að verkum að áhorfendur eignast uppáhaldskeppanda og fylgja honum að málum.
–    Keppnin spannar 3 mánuði, loftar milli móta sem gefur svigrúm til að byggja upp spennu. Þetta er nauðsynlegt fyrir alls kyns fjölmiðlaumfjöllun og spámennsku.
–    Mótin eru stutt og áhorfendavæn þess vegna.
–    Mótin eru haldin reglulega hálfsmánaðarlega á fimmtudagskvöldum (utan skeiðmóts)
Þetta fyrirkomulag er nauðsynlegt til að:
–    Laða að bestu knapana
–    Fá fjölmiðlaumfjöllun um mótin og spámennsku um framgang keppninnar
–    Fá sponsoraðila
–    Fá áhorfendur á mótin
Okkur hefur tekist þetta, en þetta gerist ekki nema með áhuga og stuðningi margra aðila, ekki síst knapa og kostunaraðila. VÍS hefur stutt dyggilega við deildina frá því hún tók aftur til starfa 2006 eftir smá hlé. Eftir 5 ára samtarf hefur VÍS ákveðið að láta gott heita, þrátt fyrir að hafa verið mjög sáttir við samstarfið allan tímann.
Síðasti aðalfundur var haldinn 9. desember í höfuðstöðvum VÍS í Ármúla.  Góð mæting var á fundinn og urðu góðar og gagnlegar umræður um deildina.
Í byrjun árs barst stjórn tillögur frá knaparáði, eftir samráðsfund þess með knöpum. Komu þar fram m.a. nokkur þeirra atriða sem ræddar höfðu verið á aðalfundi. Fagnaði stjórn þeim ábendingum, en ljóst var að vegna undangenginnar vinnu við fjáröflun var ekki framkvæmanlegt að koma til móts við öll þau atriði sem fram komu í bréfinu. Mun ný stjórn taka athugasemdirnar til skoðunnar og mun án efa kalla eftir áframhaldandi þátttöku knapa í mótun deildarinnar.  
Samið við Ölfushöll um leigu til 4 ára, Hestafréttir um útsendingar á vefnum sem síðan gengu ekki eins og menn vonuðust til. Þá var samið við RÚV um sjónvarpsþætti frá hverju móti.
Keppnistímabilið 2010
Fyrsta mót vetrarins var 28. Janúar og var keppt í Hraðafimi. Næst var keppt í fjórgangi og gekk það mót vel. Þegar kom að keppni í slaktaumatölti 25. febrúar var bylur og var því mótinu frestað um 2 daga. Þá var aftur kominn bylur og því aftur frestað og nú um einn dag. Mótið fór síðan fram sunnudagskvöldið 28. febrúar og gekk vel en frekar fáir gestir mættu. Árni Björn sagði sig út deildinni vegna anna og kom þá Ævar Örn inní lið Líflands.  Þann 11. Mars fór fram keppni í gæðingafimi og var stuðst við sama dómafyrirkomulag og árið áður, en nokkur umræða hafði verið um fyrirkomulag keppninnar. Kallað var eftir álit Hólaskóla, en barst það sama dag og keppni átti að fara fram. Áður en keppni í fimmgangi hófst sagði Daníel Jónson sig úr liði TopReiter og kom þá Elvar Þormarsson inní liðið í hans stað. Keppt var í fimmgangi 25. mars og lagði Sigurbjörn þar grunninn að titlinum, en mótið fór vel fram og var hús fyllir. Skeiðmótið var síðan haldið í Hafnarfirði laugardaginn 10. apríl, en vegna veðurs og tæknibilanna þurfti að fresta framhaldi mótsins til mánudagsins 12. apríl. Að því móti loknu héldum við að nú værum við búin að klára allar „frestanir“ en annað kom á daginn. Vegna hestapestarinnar var ákveðið að fresta lokamóti um mánuð, sem síðar var blásið af þar sem knapar voru að basla við pestina allt sumarið, sumir farnir til annara starfa og/eða höfðu ekki lengur aðgang að þeim hestum sem lagt var upp með.
Það fór svo að eftir 7 greinar af 9 stóð Sigurbjörn Bárðarson uppi sem sigurvegari annað árið í röð. Úrslit voru eftirfarandi:
Lokastaða í stigakeppni einstaklinga:
1 Sigurbjörn Bárðarson                  Lífland                                   50
2 Sigurður Sigurðarson                   Lýsi                                         35
3 Eyjólfur Þorsteinsson                  Málning                                30.5
4 Jakob S. Sigurðsson                     Frumherji                            30
5 Viðar Ingólfsson                            Frumherji                            26
6 Hulda Gústafsdóttir                     Árbakki / Hestvit              25
7 Þórdís Erla Gunnarsdóttir          Auðsholtshjáleiga            23.5
8 Sigurður V. Matthíasson            Málning                                23
9 Hinrik Bragason                             Árbakki / Hestvit              22
10 Teitur Árnason                            Árbakki / Hestvit              19
11 Lena Zielinski                                Lýsi                                         18.5
12 Guðmundur Björgvinsson      Top Reiter                           15
13 Ragnar Tómasson                       Lífland                                   13
14 Árni Björn Pálsson                      Lífland                                   12
15 – 16 Elvar Þormarsson               Top Reiter                           11
15 – 16 Halldór Guðjónsson          Lýsi                                         11
17 Valdimar Bergstað                     Málning                                10.5
18 – 19 Þorvaldur Á. Þorvaldsson Top Reiter                         10
18 – 19 Ævar Örn Guðjónsson      Lífland                                   10
20 Sigurður Óli Kristinsson            Frumherji                              6
21 Artemisia Bertus                         Auðsholtshjáleiga              5

Lokastaða í stigakeppni liða:
1 Málning                            268.5
2 Árbakki/Hestvit             254
3 Frumherji                         252
4 Lífland                               242
5 Lýsi                                     231
6 Auðsholtshjáleiga         191.5
7 Top Reiter                        175
Happdrætti
Fjöldi velunnara deilarinnar gáfu folatolla í happdrætti deilarinnar. Fékk deildin góðar tekjur af þessu og kunnum við eigendum hestanna bestu þakkir fyrir. Þetta voru hestar s.s.
064 – Ljóni frá Ketilsstöðum, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,26
066 – Sædynur frá Múla, f.ár 2002, aðaleinkunn 8,34
153 – Vilmundur frá Feti, f.ár 2001, aðaleinkunn 8,56
199 – Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu, f.ár 2005, aðaleinkunn 8,28
440 – Frosti frá Efri-Rauðalæk, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,26
504 – Straumur frá Breiðholti, f.ár 2002, aðaleinkunn 8,41
793 – Sær frá Bakkakoti, f.ár 1997, aðaleinkunn 8,62
854 – Kjarni frá Þjóðólfshaga, f.ár 2000, aðaleinkunn 8,30
855 – Óskar frá Blesastöðum, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,22
931 – Leiknir frá Vakurstöðum, f.ár 1999, aðaleinkunn 8,28

Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem ég hef unnið með að framgangi deildarinnar síðastliðin 5 keppnistímabil og vonast til að allir aðstandendur deildarinnar muni styðja við bakið á nýrri stjórn svo Meistaradeildin haldi áfram að eflast um ókomin ár.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link