Aðalheiður Anna heimsmeistari og Helga Una hlaut silfur
Í úrslitum í slaktaumatölti fullorðinna átti Ísland tvo fulltrúa. Það voru þær Helga Una Björnsdóttir á Ósk frá Stað og Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Hulinn frá Breiðstöðum en þær voru jafnar í forystu eftir forkeppni með einkunnina 8,17. í úrslitunum voru hestarnir voru hver öðrum glæsilegri á tölti og allir keppendur náðu að skila góðum sýningum.
Aðaheiður Anna og Hulinn áttu magnaðan dag og hlut hæsta einkunn allra keppenda á öllum atriðunum, frjálsri ferð, hægu tölti og sýningu á tölti á slökum taum. Þau standa því uppi sem heimsmeistarar í slaktaumatölti árið 2025. Helga Una Björnsdóttir og Ósk frá Stað áttu einnig magnaðar sýningar og hlutu góðar einkunnir þær unnu sér inn annað sætið og silfur og mæta svo galvaskar í úrslit í fjórgangi á eftir.
| # | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Hulinn frá Breiðstöðum | 8.92 |
| 2 | Helga Una Björnsdóttir | Ósk frá Stað | 8.38 |
| 3 | Oliver Egli | Hákon frá Báreksstöðum | 7.96 |
| 4 | Christina Johansen | Nóri fra Vivildgård | 7.88 |
| 5 | Christina Lund | Lukku-Blesi frá Selfossi | 7.83 |
| 6 | Lisa Staubli | Viðja frá Feti | 7.71 |
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar
Viking Masters mótaröðin í fullum gangi