Aðalheiður Anna og Óskar langefst í slaktaumatölti
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Óskar frá Breiðsstöðum sýndu frábæra takta í slaktaumatölti meistara. Einkunn þeirra er hvorki meira né minna en 8,83, sem er með því hærra sem gefið hefur verið í slaktaumatölti.
Samkvæmt worldranking lista FEIF, hefur einungis einn knapi hlotið hærri einkunn síðastliðinn þrjú ár. Það var Jolly Schrenk og hestur hennar Glæsir von Gut Wertheim en þeirra einkunn var 8,87 á móti í Þýskalandi í fyrra.
Í öðru sæti er Helga Una Björnsdóttir og Þoka frá Hamarsey en þær hlutu 7,97 í einkunn.
Jafnir í 3-4 sæti eru þeir Ásmundur Ernir Snorrason með Fræg frá Strandarhöfði og Matthías Leó Matthíasson með Doðrant frá Vakurstöðum en einkunn þeirra er 7,73.
Í fimmta sæti er Hanna Rún Ingibergsdóttir og Mörður frá Kirkju með einkunnina 7,63
Tölt T2
Opinn flokkur – Meistaraflokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum 8,83
2 Helga Una Björnsdóttir Þoka frá Hamarsey 7,97
3-4 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði 7,73
3-4 Matthías Leó Matthíasson Doðrant frá Vakurstöðum 7,73
5 Hanna Rún Ingibergsdóttir Mörður frá Kirkjubæ 7,63
6 Jakob Svavar Sigurðsson Vallarsól frá Völlum 7,60
7 Anna S. Valdemarsdóttir Sæborg frá Hjarðartúni 7,50
8 Viðar Ingólfsson Hængur frá Bergi 7,33
9 Mette Mannseth Blundur frá Þúfum 7,30
10 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hrókur frá Hjarðartúni 7,23
11-13 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 7,00
11-13 Hinrik Bragason Ópera frá Litla-Garði 7,00
11-13 Sigurður Sigurðarson Magni frá Þjóðólfshaga 1 7,00
14-15 Máni Hilmarsson Lísbet frá Borgarnesi 6,83
14-15 Henna Johanna Sirén Herjann frá Eylandi 6,83
16 Vera Evi Schneiderchen Bragur frá Steinnesi 6,53
17 Sigrún Rós Helgadóttir Tvífari frá Varmalæk 6,50
18 Sigursteinn Sumarliðason Saga frá Blönduósi 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH