Æskulýðsbikar LH

  • 4. nóvember 2022
  • Fréttir

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Atli Már Ingólfsson formaður Sörla og Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, formaður Æskulýðsnefndar LH

63. landsþing Landssambands hestamannafélaga

Æskulýðsnefnd LH veitir á hverju ári Æskulýðsbikar LH, því hestamannafélagi sem þykir hafa skarað framúr með sínu starfi að æskulýðsmálum. Valið byggir á ársskýrslum æskulýðsnefnda félaganna, sem sendar eru inn til æskulýðsnefndar LH á haustin og hefur nefndin það verkefni að velja bestu skýrsluna.

Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, formaður Æskulýðsnefndar LH, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra afhentu bikarinn.

Í ár voru skýrslurnar 15 talsins og samkvæmt Dagbjörtu áttu þær allar sammerkt að vera skemmtilegar aflestrar og voru vel uppsettar með ljósmyndum úr starfinu. Það var hestamannafélagið Sörli sem hlaut bikarinn í ár og er þar með fyrsta félagið til að hljóta þessa viðurkenningu þrisvar sinnum en áður höfðu þau fengið viðurkenninguna 1998 og 2016.

Hér fyrir neðan fylgir brot úr ræðu Dagbjartar en þar er ástæðan fyrir valinu útlistuð.

„Félagið hefur verið með mjög virkt starf og virðist sífellt vaxa og dafna. Á síðasta starfsári buðu þau upp á 9 staka viðburði og tvær viðburðaraðir. Félagið stóð fyrir alls 25 fjölbreyttum viðburðum og viðburðarröðum fyrir alla aldurshópa ef með eru talin námskeið og æfingar. Þau byrjuðu starfið sitt strax á haustmánuðum og er starfið þeirra orðið heils vetrarstarf. Auk þess að starfrækja félagshesthús standa þau fyrir markvissum æfingum líkt og önnur sérsambönd ÍSÍ. Sjá má í skýrslunni þeirra að þau eru dugleg að bjóða upp á alls kyns nýjungar og hugsa út fyrir kassann. Meðal þess sem okkur fannst athyglisvert er að þau virkja krakkana með sér og eru með sér ráð fyrir þau, settu upp TREC braut þar sem félagsmenn geta æft sig, buðu krökkunum í haustferð á hin ýmsu hrossaræktarbú og síðast en alls ekki síst nýttu þau aðstöðu Landsambandsins og stóðu fyrir fjölskylduhestaferð á Skógarhóla. Félagið telur tæplega 900 félagsmenn og var stofnað á lýðveldisárinu 1944. Þau sendu inn vandaða 13 blaðsíðna skýrslu sem var vel uppsett. Handhafi Æskulýðsbikars Landsambands hestamannafélag 2022 er Hestamannafélagið Sörli í Hafnarfirði og er þar með fyrsta félagið til að hljóta Æskulýðsbikarinn þrisvar sinnum.“ 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link