„Æviskeið er hvorttveggja í senn, yndislestur og stofustáss“
„Ég er í skýjunum yfir viðbrögðunum, og þess gætir víða í þessu viðtali að þakklátir lesendur leggi mér orð í munn. Til mín berst hvaðanæva að einróma lof og satt að segja hefði mig aldrei órað fyrir þessum viðtökum, þær eru ævintýri líkastar. Ég er þegar kominn með nokkuð þétta dagskrá að kynna bókina og lesa uppúr henni. Ef ég svaraði þessari spurningu með því að halda áfram að vitna í umsagnir sem borist hafa, skriflega, í gegnum síma og í spjalli á förnum vegi, yrði þetta viðtal fram úr hófi langt.“ Segir Bjarni Þorkelsson, höfundur bókarinnar, sem byggir á samtölum og hljóðrituðum viðtölum Bjarna við föður sinn á árunum 2003-2006. Þorkell var starfandi hrossaræktarráðunautur frá 1961-1996, samfleytt í 35 ár, en hann lést árið 2006 þá 77 ára að aldri.

Bjarni Þorkelsson með börnum sínum þremur þeim: Ragnheiði, Bjarna og Þorkeli
Bókin er hátt í 400 blaðsíður og hún geymir um 250 lýsandi ljósmyndir sem auðga hana lífi, en hvað einkennir bókina að mati Bjarna. „Það fyrsta sem blasir við og fangar augað er útlit bókarinnar. Heiðurinn af því eiga hinir öldnu höfðingjar Baltasar og Gísli B. Björnsson. Ljósmyndirnar á bókarkápu eru teknar af Eiríki Jónssyni og Einari E. Gíslasyni, sem raunar eiga flestar myndirnar í bókinni. Hið skrifaða mál einkennist af fróðleik, upplýsingagildi og sannferðugum og einlægum frásögnum – og margir segja að hún sé vel skrifuð! Hér er gengist við öllu, ekkert síður því sem öðruvísi fór en ætlað var. Það einkennir líka vissulega hversu gott orð Þorkeli liggur jafnaðarlega til þeirra manna, sem með honum hafa starfað og hann unnið fyrir. Gildi bókarinnar er ekki síst fólgið í hugleiðingum Þorkels í upphafi kaflanna – um sín hjartans mál og stefnur og strauma í hrossaræktarmálum. Einkahugleiðingar hans um fjölmörg hross, svona utan við og sem viðbót við opinber gögn um dóma og umsagnir, eru gulls ígildi – svo vitnað sé í einkasamtal við einn fjölmargra sem las bókina í einni lotu – sá gat ekki hætt, þrátt fyrir einlægan ásetning um að geyma hana til jólanna með kaffi og koníaki og smá konfekti!“
Eins og áður hefur komið fram eru nú 17 ár síðan að Þorkell kvaddi þennan heim og meðganga bókarinnar ansi löng. En hvejir standa að útgáfu hennar? „Eftir japl og jaml og fuður varð það niðurstaðan að bókarhöfundur gæfi út bókina sjálfur, með dyggri aðstoð nokkurra nákominna. Sú aðstoð fólst ekki síst í því að telja í mig kjark! En auk þess var ég svo heppinn að komast í kynni við Eyjólf Jónsson bókagerðarmann frá Reykjum í Mosfellssveit. Hann á heiðurinn af umbroti og uppsetningu bókarinnar, þeim faglegu þáttum sem ekki voru á valdi okkar í fjölskyldunni. Betri grein fyrir allri utanaðkomandi hjálp er gerð á titilsíðu og í formála bókarinnar.“
Bókin fór í dreifingu nú stuttu eftir fyrsta vetrardag og margir hafa nú þegar tryggt sér eintak af bókinni. „Það er hægt að nálgast hana á þegar auglýstum stöðum hjá trúnaðarmönnum mínum víða um land, en Ástund og Bókakaffið á Selfossi annast megin hluta dreifingarinnar hér á stærsta markaðssvæðinu. Þar er hún líka til sölu, og í bókabúðum víða um land s.s. hjá Pennanum, Líflandi og Forlaginu og eflaust víðar. Það er von mín og trú að bókin verði í harða pakkanum undir jólatrénu hjá mörgum hestamanninum um þessi jól.“

Þorkell hlaut riddarakrossinn fyrir störf sín í þágu hrossaræktar
Það dylst engum að bókin er á allan hátt hin glæsilegasta og það á enginn sem áhuga hefur á hrossarækt að láta hana framhjá sér fara.
„Það kemur kannski síst á óvart að allir eldri hestamenn, sem muna tímana tvenna, skuli vilja fá sér af hlaðborði þeirra minninga sem Æviskeið hefur að geyma – og drekka í sig frásagnir og viðhorf þess manns sem hafði betri yfirsýn yfir hrossarækt á tuttugustu öld en nokkrum öðrum gat hlotnast. Hitt var öllu torráðnara sem komið hefur á daginn: Að unga og efnilega hestafólkið, konur og karlar, sem nú er að taka við keflinu í ræktun og reiðmennsku, skuli þyrsta í þann fróðleik sem þarna er að finna. Ég veit um allmarga í þessum hópi sem eiga þá ósk heitasta að fá Æviskeið í jólapakkann.
Æviskeið er hvorttveggja í senn, yndislestur og stofustáss – en jafnframt verður hún að gegna hlutverki sínu sem uppflettirit í önn dagsins og vera til á kaffistofunni í sérhverju hesthúsi!“

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH