Af Uppskerufögnuði skagfirskra hestamanna
Uppskerufögnuður hestamanna í Skagafirði var haldinn á laugardagskvöldið í Miðgarði. Farið var yfir afrek helstu hrossa og knapa á árinu. Kynntir voru stóðhestar HSS fyrir næsta sumar, boðið var upp á tónlistaratriði og léttar veitingar. Bjarni Þorkelsson á Þóroddsstöðum var síðan ræðumaður kvöldsins og var gerður góður rómur að hans erindi. Bjarni ræddi um ræktunartakmarkiðið í hrossarækt og fleira tengt hrossapólitík dagsins, hann las minningar frá föður sínum um skagfirska gæðinga og fór með gamanmál. Í heildina var þetta hin besta kvöldstund.
Frá Hrossræktarsambandi Skagfirðinga
Hrossaræktarbú Skagafjarðar – Ófeigsbikarinn
Flugumýri II
Hæstu hross í hverjum flokki
4 v. stóðhestar
Hraunar frá Vatnsleysu
5 v. stóðhestar
Lord frá Vatnsleysu
6 v. stóðhestar
Hrannar frá Flugumýri II
Hrannar hlut einnig Sölrlabikarinn sem hæst dæmda kynbótahross ársins í Skagafirði, en hann hlaut 8,85 í aðaleinkunn sem var hæsta einkunn ársins.
7 v. og eldri stóðhestar
Seiður frá Flugumýri II
4 v. hryssur
Stúlka frá Þúfum
5 v. hryssur
Storð frá Hólum
6 v. hryssur
Ferna frá Hólum
7 v. hryssur
Blika frá Enni
Kynbótaknapi Skagafjarðar – Kraftsbikarinn
Gísli Gíslason
Frá Hestaíþróttaráði Skagafjarðar
Hestaíþróttamenn Skagafjarðar:
Barnaflokkur
Guðmar Freyr Magnússon
Unglingaflokkur
Þórdís Inga Pálsdóttir
Ungmennaflokkur
Sigurður Rúnar Pálsson
Fullorðinsflokkur
Þórarinn Eymundsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH