Afmælismót Léttis – úrslit
Góðu afmælismóti hjá okkur Léttismönnum er nú lokið. Óhætt er segja að sterkir hestar mættu til leiks og var keppnin spennandi. Okkur til mikillar gleði mættu flest allir knapar í félagsbúningi sínum og þökkum við kærlega fyrir það.
Bræðurnir Sigmar og Viðar Bragasynir voru efstir og jafnir eftir B úrslit með einkunnina 6.50. Viðar ákvað að draga sig úr A úrslitum.
Eftir hörð og góð A úrslit, sigraði Guðmundur Karl á Ás frá Skriðulandi með einkunnina 7.78.
Hér fyrir neðan má sjá allar einkunnir mótsins.