Áhugamannadeild Spretts
Hestamannafélagið Sprettur kynnir nýja keppnisröð sem hlotið hefur nafnið „Áhugamannadeild Spretts“. Um er að ræða keppnisröð að fyrirmynd Meistaradeildar í hestaíþróttum sem einungis er fyrir áhugamenn í hestamennsku. Keppnisröðin er röð fjögurra móta sem haldin verða á aðra hverja viku á fimmtudögum í Sprettshöllinni og hefst dagskráin kl. 19:00. Aðgangur er frír fyrir áhorfendur.
Keppt verður í eftirfarandi greinum:
- Fjórgangur : 5 febrúar 2015
- Fimmgangur : 19 febrúar 2015
- Tölt T2 : 5 mars 2015
- Tölt : 19 mars 2015
Sex til tíu lið taka þátt í keppnisröðinni með 4 knöpum hvert. Eftir er að taka ákvörðun um hvort 3 eða 4 knapar keppa fyrir hvert lið í hverju móti. Það ræðst að þátttöku. Einungis eru riðin A úrslit þar sem 7 efstu pörin keppa.
Um er að ræða í einstaklings- og liðakeppni þar sem knapar safna stigum fyrir sig og lið sitt. Í einstaklingskeppninni fá 10 efstu knapar stig. 1 sæti gefur 12 stig, 2 sæti 10 stig og svo koll af kolli 10. sæti gefur 1 stig. Í liðakeppninni eru stigin frá 1 til 24 og skilar sigurvegari keppninnar 24 stigum til liðsins, 2 sæti gefur 23 stig og svo koll af kolli.
Keppt er eftir reglum FIPO.
Inngangskilyrði fyrir knapa eru:
- Knapar sem keppa í áhugamannaflokkum
- Knapar sem hafa ekki laun af tamningu eða þjálfun hesta þ.e.a.s. hafi hestamennsku sem aðal atvinnugrein
- Knapar sem ekki hafa keppt í meistaraflokki eða keppt t.d. í Meistaradeildinni
- Aldurstakmark er 21 árs
- Stjórn „Áhugamannadeildar Spretts“ hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði
Allar nánari upplýsingar um tilhögun, upplýsingar um skráningargjald og skráning fer fram hjá framkvæmdastjóra Spretts Magga Ben, sími: 8933600 og email: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH