Áhugamannamót Íslands 2021 – Skráningu lýkur í kvöld
Tíminn lýður hratt og nú er komið að því, Áhugamannamót Íslands 2021 verður haldið á félagssvæði Dreyra á Akranesi 23. júli -25. júli næstkomandi.
Keppt verður í opinn flokkur 2 og eftirfarandi greinum, T3, T4, T7, V2, V5, F2, PP1 og P2.
Opna verður fyrir skráningu 13.júli og lýkur hún 19.júli kl. 23 og fer fram á sportfeng.com (þarf að velja Dreyra sem heldur þetta mót á þessu sinni).
Skráningargjald er 6000 kr pr hest en í skeiði er það 4000 kr pr hest. Skráningargjöld eru greidd á sama stað.
Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband í síma 6186896 áður en skráningarfresti lýkur.
Eingöngu verður tekið við afskráningum í síma 6186896.
Allir þeir knapar sem hafa náð 22 ári aldri (á árinu) og eldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki á síðastliðnum 2 árum hafa þátttökurétt á mótinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH