Álfur hlýtur Sleipnisbikarinn

  • 17. júní 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Þóroddur sígur upp á við

Álfur frá Selfossi er Sleipnisbikarhafi á LM2012 í Reykjavík. Hann er með 125 stig fyrir um 60 dæmd afkvæmi. Hann er líklega yngsti stóðhestur sögunnar til að hljóta þessi eftirsóttu verðlaun, aðeins 10 vetra.

Markús frá Langholtsparti er næstur með 121 stig og nær ekki að hækka sig þrátt fyrir að koma með ný frábær afkvæmi inn á árinu. Undan honum er hæst dæmdi 4 vetra stóðhesturinn inn á Landsmót, Hrafn frá Efri-Rauðalæk, með 8,28 í aðaleinkunn.

Þóroddur frá Þóroddsstöðum bætir við sig, hækkar úr 118 stigum í 120. Hann hefur bætt við sig góðum afkvæmum í vor og ber að geta þess að ekki hafa þau bestu öll komið í kynbótadóm, til dæmis hæst dæmdi alhliða gæðingurinn inn á mót, Vörður frá Strandarhjáleigu, sem er aðeins 6 vetra.

Huginn frá Haga nær þeim merka áfanga að hljóta heiðursverðlaun fyrir afkvæmi nú, eftir að hafa dansað á línunni í mörg ár. Hann er með 118 stig. Undan honum er snillingurinn Óskasteinn frá Íbishóli, sem mun væntanlega fylgja föður sínum á LM2012.

Þristur frá Feti er einnig kominn í heiðursverðlaun með 118 stig en nokkru færri afkvæmi en Huginn.

Þeir hestar sem eru með rétt til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi á LM2012 eru:

1 Víðir frá Prestsbakka með 122 stig
2 Aðall frá Nýjabæ með 121 stig
3 Krákur frá Blesastöðum 1a með 120 stig
4 Eldjárn frá Tjaldhólum með 119 stig
5 Þytur frá Neðra-Seli með 119 stig
6 Gaumur frá Auðsholtshjáleigu með 118 stig.

Rétt er að taka fram að ekki hafa allir eigendur staðfest að þeir mæti með hesta á Landsmót, en það kemur í ljós strax eftir helgi hverjir mæta og hverjir ekki.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link