Norðurlandamót Alslemma í fimmgangi ungmenna

  • 10. ágúst 2024
  • Fréttir
Þrjú efstu sætin í höfn

Úrslitum í fimmgangi ungmenna lauk nú áðan og er óhætt að segja að árangur íslensku knapanna hafi verið glæsilegur sem röðuðu sér í þrjú efstu sætin.

Védís Huld Sigurðardóttir fór krýsuvíkurleiðina að sigrinum en stendur uppi sem sigurvegari á Búa frá Húsavík. Þau unnu sér þátttökurétt í gegnum b-úrslit og er Norðurlandameistari með 7,17 í einkunn.

Matthías Sigurðsson varð annar á Páfa frá Kjarri með 6,79 í einkunn og í því þriðja Hulda María Sveinbjörnsdóttir á Hetju frá Árbæ með 6,43.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link