Ánægðir nemendur og metnaðarfullur verkefnastjóri

  • 14. febrúar 2022
  • Fréttir
Frá árinu 2008 hefur Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands boðið upp á nám í Reiðmanninum

Reiðmanninum er ætlaður fróðleiksfúsum reiðmönnum og áhugafólki um reiðmennsku sem vill auka þekkingu sína og færni. Nú þegar hafa hundruðir hestamanna sótt námið um allt land og alltaf mikil eftirspurn eftir því að komast að.

Reiðmenn almennt ánægðir með námið
Nýverið var gerð könnun á viðhorfi nemenda til námsins sem leiddi í ljós að nemendur eru almennt ánægðir. Af þeim 51 sem svöruðu könnuninni voru 48 ánægðir eða mjög ánægðir með námið. Verklegur hluti námsins fékk gríðarlega jákvæða endurgjöf frá nemendum og sögðu 43 þekkingu, reynslu og færni kennara vera mjög góða. Bóklegur hluti námsins þótti með ágætum en nokkuð var um að nemendur sögðu vægi bóklegs hluta námsins mætti vera minni.

„Námið í Reiðmanninum hefur verið í nokkurri þróun síðustu tvö til þrjú misseri og nýverið var ráðinn nýr verkefnastjóri, Randi Holaker, sem kemur inn með gríðarlega mikinn metnað og reynslu. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá í þessari könnun að nemendur í Reiðmanninum eru almennt ánægðir með námið en við gáfum nemendum einnig tækifæri til að tjá sig um hvað við getum gert til að bæta gæði námsins og það var eitt og annað þar sem við Randi erum byrjaðar að skoða, meðal annars erum við að skoða að vera með nýjar námsleiðir í haust í frumtamningum og keppnisþjálfun sem er meðal annars eitthvað sem nemendur nefndu í könnuninni,“ segir Áshildur Bragadóttir endurmenntunarstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands.

Stórhuga verkefnastjóri
Eins og áður segir var Randi Holaker nýverið ráðin sem verkefnastjóri í Reiðmanninum og kemur hún inn í starfið af miklum krafti. Randi er menntaður tamningarmaður og reiðkennari frá Háskólanum að Hólum og hefur stundað tamningar, þjálfun og reiðkennslu á Skáney í Borgarfirði ásamt eiginmanni sínum Hauki Bjarnasyni um árabil. Einnig er Randi gæðingadómari, hefur lokið fyrri hluta íþróttadómaranáms, knapamerkjadómari og með réttindi til og hefur tekið virkan þátt í að dæma gæðingafimi. Randi segir starfið vera æði umfangsmikið, fjölbreytt og skemmtilegt. „Starfið gengur út á að halda utan um allt sem viðkemur náminu, bæði bóklega hluta þess og verklegar vinnuhelgar, fyrir nemendur og kennara. Náminu er skipt í þrjú ár og eru fyrsta og annað árið tvær annir hvort og þriðja árið er ein önn. Við stefnum á að efla þriðja árið strax næsta haust og halda áfram að mennta okkar reiðmenn með meiri möguleikum. Bóklega námið er mjög breitt, allt frá sögu hestsins og þróunar hans til nákvæmustu æfinga og líkamsbreytinga hjá hesti og knapa, íþróttakeppni, gæðingakeppni, kynbótamat, fóðurfræði, aðbúnað og lífeðlisfræði.“

Randi Holaker

Átta reiðmannshópar víða um land
Í vetur eru 8 reiðkennarar með jafn marga hópa í Reiðmanninum á fimm stöðum á landinu, á Akureyri, Flúðum, Selfossi, í Hafnarfirði og í Kópavogi. Fyrir þessum hópum fara reynslumiklir reiðkennarar sem eru með mikinn metnað fyrir náminu. Randi segir starf sitt snúast líka um að styðja við reiðkennarana og efla þá enn frekar í starfi. „Markmiðið er að geta þróað og stutt okkar kennara til að við getum gert nemendur okkar að eins góðum reiðmönnum og kostur er. Námið einstaklingsmiðað, bæði hóptímar og einkakennsla og við höfum öll mikinn metnað í að halda áfram að bæta og þróa námið svo það haldi áfram að höfða jafn breiðs hóps reiðmanna og hestaáhugafólks eins og verið hefur. Við erum að uppfæra bóklega efnið hjá okkur og auka úrval gestafyrirlesara sem kenna í bóklega hlutanum og viljum að nemendur komi saman og eigi góða vinnudaga og helgar með ýmsu sniði á verklegu helgunum,“ leggur Randi áherslu á í lokin.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link