Eiðfaxi TV Annar þáttur „Á mótsdegi“ kemur út í kvöld

  • 15. febrúar 2025
  • Sjónvarp Fréttir
Ásta Björk fylgir eftir Hanne Smidesang þegar hún keppir í slaktaumatölti í Meistaradeildinni.

Annað mótið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram fimmtudaginn 6. febrúar. Eiðfaxi TV sýnir beint frá Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum ásamt því að gefa út annað efni tengt deildinni. Í kvöld kl 20:00 kemur út annar þáttur í þáttaröðinni Á MÓTSDEGI.

Þættirnir gefa áhorfendum innsýn í það hvernig það er að vera keppandi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum, hvað felst í undirbúningi og hvernig mótsdagurinn lítur út frá sjónarhóli keppendans.

Í þetta skiptið fylgir Ásta Björk Friðjónsdóttir, þáttarstjórnandi, eftir Hanne Smidesang en hún keppti á Tón frá Hjarðartúni fyrir lið Fets/Pulu. Hitti Ásta Hanne fyrsta á Byggðarhorni þar sem Hanne var að undirbúa sig fyrir kvöldið og fór síðan með henni í HorseDay höllina um kvöldið.

Ekki missa af þessum þætti og svo miklu meira til á www.eidfaxitv.is og tryggðu þér áskrift.

 

 

Næsta keppni í Meistaradeildinni er fimmgangur föstudaginn 28. febrúar í HorseDay höllinni.

Eiðfaxi TV er aðgengilegt á vefnum, í snjallsímum, Apple TV, Android TV, Google TV og Amazon Fire TV.

Ef einhverjar spurningar vakna eða þú þarft aðstoð vegna kaupa á áskrift þá getur þú sent okkur tölvupóst á help@eidfaxitv.is. Við hvetjum þá sem ætla að tryggja sér áskrift að gera það tímanlega svo hægt sé að aðstoða fólk ef eitthvað kemur upp.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar