Áramótakveðja frá Sigurbirni Bárðarsyni landsliðsþjálfara
Nú er árið 2022 að baki, hestamenn höfðu forréttindi hvað varðar að stunda sitt sport á liðnu ári, covid er búið að hafa áhrif á hestamennskuna og sérstaklega á allt mótahald en ekki með sama hætti á iðkun greinarinnar sem naut sín sem aldrei fyrr. Viðburðarríkt ár á enda, vettvangur nýrra áskorana þar sem landsmót var haldið með miklum bravör og nýjar stjörnur komu fram á sjónarsviðið og sýndu okkur að þar er engin endastöð til, algjör veisla.
Mótahaldið er komið í sinn gamla farveg þar sem samanburður og keppni eru kominn á fulla ferð. Nýjara stjörnur litu dagsins ljós bæði í mannheimum og hestheimum og hlutirnir farnir að æxlast eðlilega, mikil gróska á öllum sviðum innan hestamennskunnar, yngri flokkarnir blómstra og er með ólíkindum hversu miklar framfarir eru þar í gangi. Rykið dustað af hnakktöskunni og ferðaþyrstir hestamenn lögðu í styttri og lengri ferðalög, ræktunin tekur framfaraskrefum með ógrynni sýndra ræktunarhrossa, nýjar stjörnur verða til .
Maður spyr sig , er endalaust hægt að bæta sig á öllum sviðum ? En raunin er sú að það eru alls staðar sóknarfæri .
Undirbúningur fyrir HM 2023 í Hollandi er í fullum gangi, þar sem barist er um sæti til liðsetu bæði í yngri og eldri flokkum. Í þúsundatali er Stuðningisliðið og okkar fylgjendur héðan frá Íslandi á fullu að undirbúa sig fyrir HM ferðina til Hollands.
Innan LH er þétt haldið um taumana á öllum sviðum hestamennskunnar og á keppnisvængnum , flokkaskipting sem hefur skilað okkur fram á veginn með frábæru starfsfólki og miklum efniviði, hefst það í yngri flokkunum á Hæfileikamótun , U21 og svo Landsliðið. Þetta er aðeins brot af okkar starfi hjá samtökunum okkar sem vinnur ötullt starf á öllum sviðum hestamennskunnar.
Allt styður þetta hvort við annað, ræktunin, ferðahesturinn , reiðhesturinn og keppnishesturinn.
Viðburðar ríkt ár fram undan þar sem miklir möguleikar eru á því að njóta og gleðjast það er bjart yfir hestamennskunni , stöndum vörð um grasraótina , fjölhæfnina og iðkunina allt rúmast það fyrir. Eins og skáldið Einar Benediktsson kemur svo vel að orði.
Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest
og hleyptu á burt undir loftsins þök.
Hýstu aldrei þinn harm. Það er best.
Að heiman, út, ef þú berst í vök.
Það finnst ekki mein, sem ei breytist og bætist
ei böl sem ei þaggast, ei lund sem ei kætist
við fjörgammsins stoltu og sterku tök.
Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist.
Það er vegferð með hestinum okkar sem er ólíkindatól sem fyllir upp í allar væntingar sem leitað er eftir, allt frá því að vera sálusorgari ,með lækningamátt og gleðigjafi , hann er einstakur.
Óska ykkur velfarnaðar á nýju ári.
Sigurbjörn Bárðarson
landsliðsþjálfari
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH