Arður kemur suður
Stóðhesturinn Arður frá Brautarholti er á leið aftur á suðurlandið eftir
nokkrar góðar vikur norðan heiða, og mætir hann í Sandhólaferju þann 27. júlí næstkomandi.
Fyrir þá sem ekki vita þá er Arður undan tveimur af albestu kynbótahrossum
landsins, þeim Orra frá Þúfu og Öskju frá Miðsitju, sem bæði hafa sett
rækilegan svip á íslenska hrossarækt á síðustu árum.
Arður sjálfur hefur líka farið mjög vel af stað sem kynbótahestur.
Hann er aðeins níu vetra gamall en hefur nú þegar skilað tíu hrossum til
dóms, þ.á.m. fimm vetra stóðhestunum Blysfara frá Fremra-Hálsi og Blæ frá
Miðsitju, sem fóru báðir í góða dóma á héraðssýningu í Skagafirði nú á
dögunum, Blysfari með 8,31 í aðaleinkunn og Blær með 8,25, að ógleymdri
tölthryssunni mögnuðu, Dívu frá Álfhólum.
Sem fyrr segir þá kemur Arður í Sandhólaferju 27. júlí og verður þar út
sumarið. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Sandhólaferjubúsins (http://sandholaferja.is/) og í síma 893-0698
(Jakobína) og 661-9112 (Guðmar).
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH