Arnar Máni Reykjavíkurmeistari í fimmgangi (F2) ungmenna
Þau voru spennandi úrslitin í fimmgangi (F2) ungmenna og litlu munaði á tveimur efstu knöpum þeim Arnari Mána og Charlotte Hütter því það munaði einungis 0,03 á þeim tveimur. Arnar Máni Sigurjónsson varð þó í efsta sæti á Blesu frá Húnsstöðum en einkunn hans var 6,60 í öðru sæti varð Charlotte Hütter á Korpi frá Steinnesi með 6,57 í einkunn og í þriðja sæti varð Glódís Rún Sigurðardóttir á Sólmyrkva frá Hárlaugsstöðum 2 með 6,00 í einkunn.
Arnar Máni varð einnig Reykjavíkurmeistari.
A-úrslit fimmgangur (F2) Ungmenna
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Arnar Máni Sigurjónsson / Blesa frá Húnsstöðum | 6,60 |
| 2 | Charlotte Seraina Hütter / Korpur frá Steinnesi | 6,57 |
| 3 | Glódís Rún Sigurðardóttir / Sólmyrkvi frá Hárlaugsstöðum 2 | 6,00 |
| 4 | Hafþór Hreiðar Birgisson / Náttúra frá Flugumýri | 5,98 |
| 5 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Straumur frá Hríshóli 1 | 5,40 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV