Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Árni Björn er Meistari Meistaradeildar Líflands!

  • 27. mars 2026
  • Fréttir
Sigrar einstaklingskeppni í áttunda sinn!

Árni Björn Pálsson er meistari Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum árið 2026 og er það í áttunda sinn sem hann fagnar þessum titli, oftast allra knapa.

Hann vann sigur í einni grein það er í gæðingaskeiði á Elmu frá Staðarhofi, hann keppti í gæðingalist og tölti á Krika frá Krika í fimmgangi á Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 og í 150 metra og flugskeiði á Ögra frá Horni. Náði hann með því í 44,5 stig

Í öðru sæti varð Ásmundur Ernir Snorrason einungis hálfu stigi á eftir Árna með 43,5 stig og í því þriðja Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir með 39 stig, Jakob Svavar varð henni jafn að stigum en Aðalheiður raðast ofar vegna fleiri sigra í einstökum greinum.

Efstu 10 í einstaklingskepni

V1 T2 F1 GL PP1 150m Skeið T1 Flugskeið Samtals
Árni Björn Pálsson Top Reiter / Sumarliðabær 7.5 5.5 12 10 1 8 44
Ásmundur Ernir Snorrason Hrímnir / Hest.is 10 8 7.5 8 5 5 43.5
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ganghestar / Margrétarhof 12 6 12 3 4 2 39
Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún 7 7 5 10 10 39
Konráð Valur Sveinsson Top Reiter / Sumarliðabær 10 12 12 34
Jón Ársæll Bergmann Ib bílar 12 6 2 6 7 33
Þorgeir Ólafsson Ib bílar 12 5.5 8 4 3 32.5
Eyrún Ýr Pálsdóttir Top Reiter / Sumarliðabær 2.5 5 7 10 24.5
Glódís Rún Sigurðardóttir Hestvit / Árbakki 8 2 1 12 23
Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún 4 4 3.5 7 3 21.5
Fréttin hefur verið uppfærð þar sem stigum Eyrúnar Ýrar fyrir flugskeið var bætt við útreikninganna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link