Árni Björn kominn með Listina aftur
Árni Björn Pálsson, sem er við nám á Hólaskóla, er þátttakandi í Meistaradeild Norðurlands í hestaíþróttum, KS-deildinni. Búið er að keppa í fimmgangi og fjórgangi, en Árni Björn hefur ekki náð á toppinn, þar sem hann á heima samkvæmt fyrri árangri. Nú gæði það hins vegar breyst. Á miðvikudagskvöld verður keppt í tölti. Þar mætir Árni Björn með gamlan kunningja, List frá Vakurstöðum, sem um tíma var á toppi í tölti á landsvísu hjá Huldu Gústafsdóttur. Árni Björn tamdi og þjálfaði hryssuna fyrir þann tíma og þekkir hana því vel. Gaman verður að sjá hvort List er ennþá á skotskeifunum, en hún hefur undanfarin ár sinnt hlutverki sínu sem undaneldishryssa.
Ps. Rétt er að árétta að það var Lena Zielinski sem tamdi list og sýndi hana fyrst í dómi, og síðan á LM2002. Árni Björn tók síðan við hryssunni árið á eftir í áframhaldandi tamningu og þjálfun, og keppti svo á henni með glæsilegum árangri á LM2004 og á Íslandsmóti 2004, var í öðru sæti í bæði skiptin. Árni er nú með hryssuna í þjálfun og stefnt úrtöku fyrir LM2011. List hefur nú eignast þrjú afkvæmi. Þar með talinn efnilegan stóðhest undan Veigari frá Vakursstöðum á fjórða vetur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH