Árni Björn með hæstu hæfileikaeinkunn ársins
Ráðstefnan Hrossaræktin 2021 var haldin í dag og þar fóru fram verðlaunaveitingar.
Árni Björn Pálsson var verðlaunaður fyrir hæstu hæfileika einkunn ársins (án áverka) í kynbótadómi. Hann sýndi gæðingahryssuna Frigg frá Hólshúsum en Frigg hlaut 8,89 fyrir hæfileika. Í aðaleinkunn hlaut hún 8,70 og fyrir sköpulag 8,34.
Frigg var ræktuð af Vali Ásmundssyni, Kolbrúnu Ingólfsdóttur og Dagnýju Lindu Kristjánsdóttur en þau eru einnig eigendur. Frigg er undan Kambi frá Akureyri og Finndísi Fjólu frá Meiri-Tungu 3.
Eiðfaxi óskar Árna Birni til hamingju með viðurkenninguna
Dómur Friggjar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH