Landsamband hestamanna Aron og Hilmir taka þátt í A-úrslitum í slaktaumatölti

  • 25. júlí 2026
  • Fréttir
Niðurstaða B-úrslita í slaktaumatölti T4

Í dag, laugardaginn 25.júlí, er sannkallaður B-úrslita dagur á Íslandsmóti barna og unglinga því B-úrslit í hinum ýmsu keppnisgreinum eru framan af degi en keppnisdagskrá lýkur svo með 100 metra skeiði sem hefst klukkan 17:30. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.

B-úrslit í slaktaumatölti T4 fóru fram fyrr í dag þar sem Hilmir Páll Hannesson á Goða frá Oddgeirshólum stóð efstur í unglingaflokki og ríður því til A-úrslita á morgun. Í barnaflokki var það Aron Einar Ólafsson á Hrafnari frá Hvoli sem tryggði sér sæti í A úrslitum á morgun

B úrslit – T4 – Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Hilmir Páll Hannesson Goði frá Oddgeirshólum 4 6,92
7 Sigríður Fjóla Aradóttir Ekkó frá Hvítárholti 6,79
8-9 Erla Rán Róbertsdóttir Glettingur frá Skipaskaga 6,75
8-9 Apríl Björk Þórisdóttir Sikill frá Árbæjarhjáleigu II 6,75
10 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Dynjandi frá Álfhólum 6,71

B úrslit – T4 – Barnaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Aron Einar Ólafsson Hrafnar frá Hvoli 6,83
7 Þorgeir Nói Jóhannsson Hnokki frá Áslandi 6,71
8-9 Eva Hrönn Ásmundsdóttir Spyrna frá Strandarhöfði 6,50
8-9 Svala Björk Hlynsdóttir Eindís frá Auðsholtshjáleigu 6,50
10 Embla Sirén Matthíasdóttir Glæsir frá Traðarholti 6,38

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link