Ársmiðar Meistaradeildar í hestaíþróttum
Ársmiðar Meistaradeildar í hestaíþróttum sem gilda á öll mót deildarinnar fást nú í hestavöruverslununum Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi. Ársmiðinn kostar kr 5.000,-.
Fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum fer fram næst komandi fimmtudag í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Þá verður keppt í fjórgangi og hefst mótið klukkan 19:30.
Eins og áður sagði kostar ársmiðinn kr 5.000,- en miðaverð á hvert mót er
1.500,- .Ársmiðar verða seldir við innganginn en eru einnig seldir á höfuðborgarsvæðinu í verslununum Top Reiter og Líflandi og á Selfossi í Baldvini og Þorvaldi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH