Áskorendamót Riddara Norðursins næstu helgi
Áskorendamót Riddara Norðursins fer fram í reiðhöllinni Svaðastaðir, laugardaginn 12. mars nk.
Áskorendamótið er árlegur viðburður haldinn af félagsskapnum Riddarar Norðursins sem skora á fjögur lið til að koma og keppa við sig í fjórgangi, fimmgangi, tölti og skeiði. Í fyrra sigraði lið Riddara Norðursins með litlum mun og segir í fréttatilkynningu frá félagsskapnum að það leiki engin vafi á því að hart verði barist um bikarinn í ár.
Þau lið sem mæta liði Riddara Norðursins í ár eru lið Lúlla Matt úr Eyjafirðinum, lið Þyts þar sem liðstjóri er Tryggvi Björns, lið Narfastaða og lið Vatnsleysu.
Áskorendamót Riddara Norðursins hefst kl. 20 og miðaverð á mótið er 1000 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum