Áskorendamót Riddara Norðursins
Áskorendamót Riddara Norðursins fer fram í reiðhöllinni Svaðastöðum 24. mars nk.
Fimm þrælsterk lið mæta til leiks þetta árið og stefna þau öll á sigur að er fram kemur í tilkynningu frá Riddurunum. Liðin eru:
- Lið Riddaranna
- Lið Lúlla Matt
- Lið Narfastaða
- Lið Vansleysu
- Lið Skörðugils
Samkvæmt leikreglum Riddaranna er hvert lið skipað fjórum keppendum sem keppa í jafnmörgum greinum. Hver grein er riðin af einum keppanda úr hverju liði og eru aðeins riðin úrslit. Keppt er í fjórgangi, fimmgangi, tölti og skeiði.
Í fyrra sigraði lið Narfastaða og mun Bjarni liðsstjóri sjálfsagt ekki láta bikarinn af hendi baráttulaust.
Hörkuhross eru skráð til leiks, þar á meðal þeir Fróði frá Staðartungu og Andri frá Vatnsleysu, en þeir hafa báðir fengið 9 fyrir tölt og vilja og geðslag í kynbótadómi.
Leikar hefjast kl. 20 og er aðgangseyrir 1000 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH