Ástand beitarlanda

  • 15. september 2014
  • Fréttir
Hvernig er beitarland þitt eftir sumarið?

Haustin eru góður tími til þess að meta ástand beitarlanda. Þá er hægt að meta hvaða áhrif sumarbeitin, og eftir atvikum beit liðinna ára, hefur haft á beitarlandið. Beit er í sjálfu sér hvorki góð né slæm en hefur áhrif á gróður og vistkerfi. Fyrir þá sem nýta land er því mikilvægt að átta sig á því hvaða áhrif beitarskipulag þeirra hefur og að geta hagað beitinni þannig að vistkerfinu sé viðhaldið og þar með verðmæti beitarlandsins. 

Landgræðsla ríkisins hefur gefið út efni til þess að leiðbeina landnotendum við mat á ástandi beitarlands. Hægt er að nálgast það efni hér.

Hér er einnig hægt að sjá ýmsa fróðleiksmola um hrossabeit

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link