Átta hross hlutu 1.verðlaun í Hafnarfirði
Ljósálfur í kynbótasýningu árið 2020
Síðsumarssýningu á Sörlastöðum í Hafnarfirði lauk í morgun með yfirlitssýningu. Alls voru 33 hross sýnd í fullnaðardómi og hlutu 8 þeirra aðaleinkunn yfir 8,00 og 1.verðlaun. Dómarar voru Eyþór Einarsson og Arnar Bjarki Sigurðarson.
Hæst dæmda hross sýningarinnar var Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum sem er 7.vetra gamall undan Álfadísi frá Selfossi og Lord frá Vatnsleysu. Hann hlaut 8,59 fyrir sköpulag og þar af 9,5 fyrir fótagerð og 9,0 fyrir bak og lend en hann hlaut sama sköpulagsdóm og á síðasta ári. Hann hækkaði hæfileikadóm sinn frá því í fyrra og hlýtur nú 8,31 fyrir hæfileika og þar af 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, brokk, greitt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Sýnandi Ljósálfs var eigandinn og ræktandinn Olil Amble. Um Álfadísi þarf ekki að fjölyrða sem ræktunargrip en 13 afkvæmi hennar hafa mætt til dóms og er meðaltal aðaleinkunnar hvorki meira en 8,45.
Hæst dæmda hryssa sýningarinnar var Hvelfing frá Ásmundarstöðum 3 sýnd af Guðmundi Björgvinssyni. Hvelfing er undan Sjóði frá Kirkjubæ og Hvellhettu frá Ásmundarstöðum. Ræktandi og eigandi er Nanna Jónsdóttir. Hvelfin hlaut fyrir sköpulag 8,03 en fyrir hæfileika 8,52 og þar af 9,0 fyrir brokk, samstarfsvilja og greitt stökk.
Fullnaðardæmd hross raðað eftir aðaleinkunn
| Hross á þessu móti | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn | Sýnandi |
| IS2014187660 Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum | 8.59 | 8.31 | 8.41 | Olil Amble |
| IS2014286587 Hvelfing frá Ásmundarstöðum 3 | 8.03 | 8.52 | 8.35 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2016256956 Eining frá Skagaströnd | 8.6 | 8.08 | 8.26 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2015276236 Eyvör frá Lönguhlíð | 8.35 | 8.12 | 8.2 | Bergur Jónsson |
| IS2016201167 Artemis frá Prestsbæ | 8.44 | 7.95 | 8.13 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2015187661 Galdur frá Syðri-Gegnishólum | 8.04 | 8.12 | 8.1 | Elín Holst |
| IS2016181905 Sesar frá Rauðalæk | 8.51 | 7.87 | 8.09 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2015286589 Hvöt frá Ásmundarstöðum 3 | 7.86 | 8.08 | 8.01 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2016276176 Saga frá Ketilsstöðum | 8.01 | 7.97 | 7.99 | Olil Amble |
| IS2017276182 Sena frá Ketilsstöðum | 8.04 | 7.88 | 7.94 | Elín Holst |
| IS2015281914 Vorsól frá Rauðalæk | 8.04 | 7.84 | 7.91 | Guðmundur Friðrik Björgvinsson |
| IS2016276185 Fröken frá Ketilsstöðum | 8.06 | 7.82 | 7.91 | Elín Holst |
| IS2012265980 Björt frá Akureyri | 7.96 | 7.85 | 7.89 | Sigurður Vignir Matthíasson |
| IS2014201045 Dóra frá Skipaskaga | 8.08 | 7.69 | 7.83 | Leifur George Gunnarsson |
| IS2014282485 Ísrún frá Dvergasteinum | 8.23 | 7.61 | 7.83 | Brynja Amble Gísladóttir |
| IS2015235084 Alda frá Steinsholti 1 | 8.18 | 7.63 | 7.82 | Magnús Rúnar Magnússon |
| IS2016235084 Bára frá Steinsholti 1 | 8.34 | 7.45 | 7.77 | Magnús Rúnar Magnússon |
| IS2012282450 Eyða frá Halakoti | 7.93 | 7.61 | 7.72 | Jóhannes Magnús Ármannsson |
| IS2015201308 Ásthildur frá Birkiey | 8.12 | 7.45 | 7.68 | Bergur Jónsson |
| IS2016201980 Andrá frá Sauðastapa | 7.74 | 7.61 | 7.66 | Leifur George Gunnarsson |
| IS2013282463 Sól frá Halakoti | 8 | 7.28 | 7.54 | Hanna Sofia Hallin |
| IS2014225322 Fluga frá Gunnarshólma | 8.16 | 6.88 | 7.33 | Jón Herkovic |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum