Auglýsa eftir umsjónarmanni Hestamiðstöðvar á Mið-Fossum
Landbúnaðarháskóli Íslands auglýsir eftir umsjónarmanni Hestamiðstöðvarinnar að Mið-Fossum frá og með 1. september nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umhirða hesta
- Gerð og eftirfylgni með leigusamningum
- Samskipti við nemendur, kennara og aðra hagaðila
- Viðhald og umsjón með húsnæði og lausafjármunum
- Aðkoma að kennslu kemur til greina
- Aðkoma að alþjóðlegu samstarfi kemur til greina
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Veruleg reynsla í hestahaldi og hestatengdum rekstri
- Menntun og/eða reynsla í tamningum og þjálfun hrossa æskileg
- Reynsla af almennum bústörfum
- Vinnuvélaréttindi
- Þjónustulund, frumkvæði, fagleg nálgun og góð samskiptahæfni
Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst 2021
Nánari upplýsingar veita Theodóra Ragnarsdóttir rekstrarstjóri [email protected] og Guðmunda Smáradóttir mannauðs- og gæðastjóri [email protected].
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH