Bikarkeppni LH
Bikarkeppni LH mun fara fram 23. – 24. apríl næstkomandi í reiðhöllum hestamannafélaganna Fáks og Spretts. Fyrri daginn verður forkeppni á báðum stöðum en seinni daginn munu öll úrslit fara fram í nýrri glæsilegri reiðhöll Spretts. Keppt verður í T3, V2 og F2 í fullorðins-, og ungmenna- og unglingaflokki.
Keppt verður eftir lögum og reglum LH. A-úrslit verða í öllum flokkum og einnig B-úrslit þar sem þátttakendur í forkeppni eru 20 eða fleiri. Sigurvegari hverrar greinar í hverjum flokki hlýtur titilinn Bikarmeistari 2014.
Tilhögun um val á keppendum verði eftirfarandi:
- Hestamannafélögin byggi á þeim mótum sem fyrir eru ef kostur er.
- Hestamannafélögin saman eða ein og sér setji upp úrtökur fyrir sína keppendur eftir aðstæðum á hverjum stað og fjölda félaga.
Lagt er til að svæðin verði eftirfarandi og fjöldi keppenda frá hverju svæði.
- Hestamannafélögin á Vesturlandi sendi 4. Keppendur í hvern flokk.
- Hestamannafélögin í Húnavatnssýslu sendi 2. ————–
- Hestamannafélögin í Skagafirði og Siglufirði 3. ————-
- Hestamannafélögin í Eyjafirði og Þingeyjars. 4. ————–
- Hestamannafélögin á Austfjörðum og Hornafirði 2. ————–
- Hestamannafélögin í Skaftafellsýslu (Kópur-Sindri) 1. ————–
- Hestamannafélagið Geysir í Rangárvallasýslu 3. ————-
- Hestamannafél. Smári,Trausti, Logi í Árnessýslu 2. ————-
- Hestamannafél. Sleipnir, Ljúfur, Háfeti í Árnessýslu 3. —————
- Hestamannafélögin Brimfaxi og Máni 2. —————
- Hestamannafélagið Sörli og Sóti 4. ————–
- Hestamannafélagið Sprettur 4. ————–
- Hestamannafélagið Hörður og Adam 3. ————-
- Hestamannafélagið Fákur 5. ————-
Samtals væru því 42 keppendur í hverri grein ef full þátttaka næst. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og verður dagana 14. -20. apríl og verður skráningargjaldið kr. 5.000. Slóðin er http://skraning.sportfengur.com/
Allar nánari upplýsingar gefur skrifstofa LH.
Formenn eru hvattir til að taka vel í þessa frumraun og vísi að mótaröð sem vonandi á eftir að þróast farsællega í höndum LH og hestamannafélaganna í landinu, þar sem keppt verður á grundvelli félaganna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH