Bikarkeppnin 2010-smali-brokk og skeið í Mána
Bikarkeppnin á milli hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram og á föstudaginn fór fram keppni í smala, brokki og skeiði í Mánahöllinni í Reykjanesbæ. Smalann sigraði Hafnfirðingurinn Kristján Jónsson á smalahestinum Bróður frá Stekkjardal. Brokkið sigraði hins vegar Fákskonan Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir á Gusti frá Múla. Í skeiðinu var hins vegar Mánakonana Ylfa Eik Ómarsdóttir fljótust á Þrumu frá Norður-Hvoli og skákaði þar ekki ómerkari mönnum en Teit Árnasyni, Eyjólfi Þorsteinssyni, Jóhanni Þór Jóhannessyni og Axel Geirssyni.
Næsta mót verður föstudaginn 26. mars klukkan 20:00 í reiðhöll Fáks í Víðidal. Keppt verður í tölti ( 3 hestar frá hverju félagi ) Einnig verður keppt í formannatölti.
Úrslit Smali
1. Kristján Jónsson – Bróðir frá Stekkjardal – Sörli
2. Brynja Kristinsdóttir – Fiðla frá Gunnlaugsstöðum – Sörli
3. Vilmundur Jónsson – Hrefna frá Skeiðháholti – Gustur
4. Ragnheiður Þorvaldsdóttir – Hrafnagaldur frá Hvítárholti – Hörður
5. Matthías Kjartansson – Glói frá Vallanesi – Andvari
Úrslit Brokk
1. Vilfríður Fannberg Sæþórsdóttir Gustur frá Múla – Fákur
2. Jóhann Þór Jóhannesson– Ástareldur frá Stekkjarholti— Hörður
3. Sveinbjörn Bragason Byr frá Eyvindarhóli -Máni
4. Finnur Bessi Svavarsson – Frá frá Miklaholti – Sörli
5. Már Jóhannsson – Valíant frá Miðhjáleigu – Andvari
6. Berta María Waagfjörð og Blöndal frá Blesastöðum—Gustur
Úrslit skeið
1. Ylfa Eik Ómarsdóttir – Þruma frá Norður-Hvoli – Máni
2. Teitur Árnason – Korði frá Kanastöðum – Fákur
3. Eyjólfur Þorsteinsson – Vorboði frá Höfða – Sörli
4. Jóhann þór Jóhannesson – Sævar frá Dal – Hörður
5. Axel Geirsson – Losti frá Norður- Hvammi – Andvari
6. Magnús Kristinsson – Íri frá Gafli – Gustur
Stuðningsliðin
1. Máni ( 3 stig )
2. Sörli ( 2 stig )
3. Hörður ( 1 stig )
Stigin standa svona:
Sörli 42 stig
Hörður 37 stig
Fákur 37 stig
Máni 34 stig
Gustur 23 Stig
Andvari 17 stig
Sóti 2 stig
Stigin fyrir stuðningslið standa svona:
Máni 7 stig
Hörður 5 stig
Sörli 4 stig
Andvari 2 stig
Myndir af mótinu má sjá á mani.is http://mani.is/ljosmyndir/gallery.asp?categoryid=180
Mótanefnd Bikarmóts
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH