Birna og lið Sporfáka sigurvegarar í fimmgangi 1.deildar Hringdu
Birna og Hetja frá Hofi í keppni kvöldsins. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Keppni í fimmgangi í 1.deild Hringdu fór fram í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði nú í kvöld. Næst verður keppt í tölti og flugskeiði þann 9.apríl áður en lokakeppnin fer fram þann 18.apríl þegar keppt er í gæðingaskeiði.
Birna Olivia Ödqvist og Hetja frá Hofi I komu sáu og sigruðu í keppni kvöldsins. Þær leiddu eftir forkeppni með 6,83 og héldu þeirri forystu að loknum úrslitum og stóðu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 6,98. Í öðru sæti varð Lea Schell á Húna frá Efra-Hvoli með 6,90 í úrslitum og í þriðja sæt Snorri Dal á Gimsteini frá Víðinesi 1 með 6,88.
Lið Sportfáka var stigahæsta lið kvöldsins en fyrir þau kepptu áður nefndur Snorri Dal, sem varð þriðji, Páll Bragi Hólmarsson á Takti frá Hrísdal sem endaði í 6.sæti úrslita með 5,79 og Katla Sif Snorradóttir á Hyggju frá Hestabergi sem varð í 7.-8. sæti með einkunnina 6,27.

Lið Sportfáka F.v. Páll Bragi Hólmarsson, Snorri Dal, Katla Sif Snorradóttir, Anna Björk Ólafsdóttir og Ingibergur Árnason. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Niðurstöður kvöldsins.
| Fimmgangur F1 | |||
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Birna Olivia Ödqvist | Hetja frá Hofi I | 6,83 |
| 2 | Lea Schell | Húni frá Efra-Hvoli | 6,80 |
| 3 | Hlynur Guðmundsson | Neisti frá Ytri-Skógum | 6,57 |
| 4 | Snorri Dal | Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 6,40 |
| 5 | Páll Bragi Hólmarsson | Taktur frá Hrísdal | 6,37 |
| 6 | Benedikt Ólafsson | Tobías frá Svarfholti | 6,33 |
| 7-8 | Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson | Greifi frá Söðulsholti | 6,27 |
| 7-8 | Katla Sif Snorradóttir | Hyggja frá Hestabergi | 6,27 |
| 9 | Ólöf Rún Guðmundsdóttir | Hraundís frá Selfossi | 6,23 |
| 10 | Sigrún Högna Tómasdóttir | Sirkus frá Torfunesi | 6,20 |
| 11 | Hermann Arason | Ósk frá Vindási | 6,17 |
| 12 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Myrkvi frá Traðarlandi | 5,97 |
| 13 | Sigvaldi Lárus Guðmundsson | Jón forseti frá Hesjuvöllum | 5,87 |
| 14 | Þorvaldur Logi Einarsson | Saga frá Kálfsstöðum | 5,83 |
| 15 | Reynir Örn Pálmason | Lína frá Miklaholtshelli | 5,80 |
| 16 | Rakel Sigurhansdóttir | Blakkur frá Traðarholti | 5,70 |
| 17 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Bjartur frá Finnastöðum | 5,60 |
| 18 | Fredrica Fagerlund | Salómon frá Efra-Núpi | 5,47 |
| 19 | Henna Johanna Sirén | Auga-Steinn frá Árbæ | 5,43 |
| 20 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Mozart frá Torfunesi | 5,40 |
| 21 | Helgi Þór Guðjónsson | Nasi frá Syðra-Velli | 5,20 |
| 22 | Sunna Sigríður Guðmundsdóttir | Muggur hinn mikli frá Melabergi | 4,97 |
| 23 | Bergrún Ingólfsdóttir | Árvakur frá Kálfholti | 4,93 |
| 24 | Vilborg Smáradóttir | Vakar frá Auðsholtshjáleigu | 4,50 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Birna Olivia Ödqvist | Hetja frá Hofi I | 6,98 |
| 2 | Lea Schell | Húni frá Efra-Hvoli | 6,90 |
| 3 | Snorri Dal | Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 6,88 |
| 4 | Hlynur Guðmundsson | Neisti frá Ytri-Skógum | 6,83 |
| 5 | Benedikt Ólafsson | Tobías frá Svarfholti | 6,12 |
| 6 | Páll Bragi Hólmarsson | Taktur frá Hrísdal | 5,79 |
Birna og lið Sporfáka sigurvegarar í fimmgangi 1.deildar Hringdu
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Barist til þrautar í Meistaradeild KS