Í gær fór fram uppskeruhátíð hestamannafélagins Skagfirðings fram þar sem knapar ársins hjá félaginu voru verðlaunaðir.
Knapi ársins í Skagfirðingi var Bjarni Jónasson. Hann átti góðu gengi að fagna á keppnisvellinum en hann var einnig útnefndur íþrótta -og gæðingaknapi ársins. Hann sigraði meðal annars fimmgang á WR Hólamóti og reið til úrslita í sömu grein á Landsmóti með Hörpu Sjöfn frá Hvolsvelli (7.43 í einkunn). Hann sigraði tölt á WR Hólamóti og Stórmóti Hrings með Dís frá Ytra-Vallholti en þau hlutu í sumar 8.06 í tölti T1 og riðu til B-úrslita í B-flokki á Landsmóti í sumar þar sem þau hlutu 8.82 í einkunn. Einnig átti Bjarni gott ár í gæðingaskeiði með Eðalstein frá Litlu-Brekku og Rúrik frá Sauðárkróki, Eind frá Grafarkoti í A-flokki og Leik frá Sauðárkróki í slaktaumatölti (8.17).
Aðrir tilnefndir til íþróttaknapa ársins voru Daniel Gunnarsson og Mette Mannseth en til gæðingaknapa ársins Finnbogi Bjarnason, Mette Mannseth og Skapti Steinbjörnsson.
Daníel Gunnarsson er skeiðknapi ársins. Hann vann til bronsverðlauna á Íslands -og Landsmóti í 150m skeiði á Skálmöld frá Torfunesi á tímanum 14.08 sekúndum, var í fyrsta og öðru sæti í 250m skeiði á WR Hólamóti ásamt því að sigra 250m skeið á Stórmóti Hrings. Daniel hefur einnig náð góðum árangri með fjölmörg hross í 250 m. skeiði og 100 m. skeiði, meðal annars með fjögur hross undir 8 sekúndum í 100m.
Keppnishross hans í sumar voru: Strákur frá Miðsitju, Kló frá Einhamri 2, Smári frá Sauðanesi, Stapi frá Oddhóli, Skálmöld frá Torfunesi, Kári frá Korpu og Sigur frá Sámsstöðum. Aðrir tilnefndir voru Sigurður Heiðar Birgisson og Bjarni Jónasson.
Knapi ársins í áhugamannaflokki er Þóranna Másdóttir. Hún sigraði B-flokk og tölt áhugamanna í Skagfirsku mótaröðinni ásamt því að sigra tölt og fjórgang á WR Hólamóti með Dalmar frá Dalbæ. Tilnefndur var einnig Pétur Ingi Grétarsson.
Knapi ársins í ungmennaflokki er Þórgunnur Þórarinsdóttir en hún varð Íslandsmeistari í samanlögðum fimmgangsgreinum, var í í öðru sæti í fimmgangi og fjórða sæti í gæðingaskeiði á Íslandsmóti með Djarf frá Flatatungu ásamt því að vera í sjöunda sæti í fjórgangi með Hnjúk frá Saurbæ. Hún sigraði tölt og fjórgang á WR Hólamóti og reið til B-úrslita á Landsmóti í sumar með Jaka frá Skipanesi. Aðrar tilnefndar voru Björg Ingólfsdóttir og Ólöf Bára Birgisdóttir.
Reiðkennari ársins á Íslandi er Skagfirðingurinn Finnbogi Bjarnason og verður var á Finnboga sent til Feif sem reiðkennari ársins fyrir Íslands hönd (e.Feif trainer of the year) og verður kosning á vefsíðu FEIF þar sem kosið verður um einn reiðkennara frá hverju landi.
Skagfirðingur hefur í nokkur ár verðlaunað félagsmann ársins, en það er sá félagsmaður sem hefur að óeigingirni og dugnaði verið boðinn og búinn til að sinna hinum ýmsu störfum og tekið þátt í félagsstarfinu að mikilli jákvæðni svo eftir er tekið. JÁ manneskja okkar í ár er Sigurlína Erla Magnúsdóttir en hún var einnig kosin LH félagi ársins.
Áskrifendur að Eiðfaxa fá sent til sín fjórar bækur á ári ásamt ávísun á fría Stóðhestabók og Árbók. Einnig er hægt að óska eftir rafrænum aðgangi þar sem hægt er að lesa allar bækur Eiðfaxa ásamt eldri tímaritum.Áskrift