Bleikur og blesóttur – fyrirlestur um litbrigði hestsins
Bergljót Rist leiðsögumaður og hestakona fjallar um hin einstöku litbrigði íslenska hestsins á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 26. júní kl. 15. Viðburðurinn tengist sýningunni Jór!- Hestar í íslenskri myndlist en einnig verður farið um sýninguna og verkin skoðuð út frá efnistökum Bergljótar. Eitt af helstu einkennum íslenskra hesta eru litbrigðin og hin skáldlegu heiti sem þeim hafa verið gefin. Þannig er talað um rauðan lit, bleikan, leirljósan, brúnan, mósóttan, jarpan, bleikálóttan, moldóttan og móvindóttan. Litirnir eru eitt, en Bergljót mun einnig leiða gesti í sannleik um það hvernig hestarnir eru líka ýmist skjóttir, blesóttir, stjörnóttir, nösóttir, tvístjörnóttir eða sokkóttir.
Margareterhof er selt
Framlengdur skráningafrestur í Suðurlandsdeild