Boðið upp á ferð á HM í ágúst
Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í St.Radegund í Austurríki dagana 1. – 7. ágúst.
Á heimasíðu LH auglýsir ferðaskrifstofan Úrval/Útsýn fjögurra nátta ferð á mótið daganna 4.-8. ágúst. Flogið verður til Salzburg í beinu leiguflugi. Boðið er upp á gistingu á fjögurra stjörnu hóteli í Salzburg með morgunverði og akstri að og frá mótssvæði. Verðdæmi sem ferðaskrifstofan tekur er 149.000 kr og er þá miðað við gistingu í tvíbýli. Innifalið í verðinu er flug, skattar, akstur til og frá flugvelli, gisting með morgunverði, íslensk fararstjórn, 3x akstur til og frá mótsstað. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þennan ferðapakka er bent á að bókanir verði að berast ferðaskrifstofunni Úrval/Útsýn fyrir 1. apríl.
Allar upplýsingar um Heimsmeistaramótið má nálgast á heimasíðu þess hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH