Borið í brestina
Í sumar vakti Hestablaðið athygli á því að reglur um framkvæmd gæðingakeppni væru mjög óskýrar. Keppandi gæti ekki stuðst við þær til að búa til löglegt prógram. Þetta var í kjölfar þess að Tinni frá Kjarri var dæmdur úr leik í A flokki gæðinga á úrtökumóti Sleipnis í vor. Helgi Eggertsson, eigandi Tinna, kærði atvikið til aganefndar og sagði í samtali við Hesablaðið að ótækt væri að dæmt væri eftir reglum sem gæðingadómarar væru með á servéttum í rassvasanum. Aganefnd staðfesti hins vegar frávísunardóminn, að vísu með mjög loðnum rökum. Keppnisnefnd sá ástæðu til að leggja fyrir LH þing tillögu um að lagfæra reglurnar. Sem var samþykkt. Þar með er búið að bera í brestina. Á myndinni eru Tinni og Daníel Jónsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH