Brekkudómarar athugið!

  • 10. mars 2011
  • Fréttir
Brekkudómarar athugið!

Birting FIPO leiðarann fyrir síðastu Meistaradeildarkeppni í tölti var vel tekið af brekkudómurum og því endurtekur Eiðfaxi leikinn aftur.

Hér er FIPO Leiðarinn fyrir hverja gangtegund í fimmgangskeppni.

Eiðfaxi ráðleggur brekkudómurum að prenta út Leiðarann og taka hann með í kvöld. Hann hvetur þá enn og aftur til að vera málefnalegir í allri umræðu um dómstörf.

Góða skemmtun.

 

Tölt – hægt til milliferð eða frjáls ferð

 

Almennt

Lýsing hraða

Í F1 er beðið um hægt til milliferðar tölt. Í T2 er mikilvægt hver sá sem hraðinn er

sem valinn er, sé dæmdur á sama grundvelli. Einnig er tekið tillit til reiðstíls og

bendinga.

Frádráttur

Draga má 0,5 til 2 frá fyrir:

• Rangan hraða (F1)

• Slæma reiðmennsku (t.d. slæmt jafnvægi, hendur festar á hnakk)

• Aðeins sýnd sem nemur einni langhlið á gangtegundinni

• Gróf reiðmennska (gult spjald)

Draga má 2.0 frá fyrir:

• Einungis sýnt sem samsvarar einni langhlið

Ef minna en sem svara einni langhlið er sýnt, er ekki gefin einkunn fyrir atriðið.

Hækkun

Hækka má einkunn um 0,5 fyrir góða reiðmennsku og samræmisgóða sýningu.

Glæsileg sýning

9 til 10

Taktur gallalaus.

• Háar, miklar og mjúkar hreyfingar ásamt góðum burði í afturparti,

áreynslulaust en þó kraftmikið, hesturinn geislar af stolti og höfuðburður í

góður.

8 og 8.5

Góður taktur.

• Mjög góður, hár og mikill fótaburður, áreynslulaust að sjá en þó nokkuð

kraftmikið, afturpartur vel virkur, fallegur og samræmisgóður höfuðburður

• Mjög hár fótaburður, kraftmikið, meðalburður í afturparti, glæsilegur

höfuðburður.

Góð sýning

7 og 7.5

Réttur taktur og höfuðburður.

• Meðal fótaburður, kraftmikið, mjög góður höfuðburður

• Mjög góður, hár og mikill fótaburður með lítilsháttar höfuðburðargöllum

• Áhrifamikill, hár og mikill fótaburður ásamt einstaka greinilegum göllum

(höfuðburður, taktur)

• Mjög góður fóta- og höfuðburður, hreinn taktur en spennu gætir í baki

• Mjög góður fóta- og höfuðburður, hreinn taktur en dálítið stuttstígur að aftan

Meðalsýning

6 og 6.5

• Jafn taktur, meðal fótaburður, höfuðburður í lagi

• Hreinn taktur, tæplega meðal fótaburður, mikill kraftur, mjög góður

höfuðburður

• Góður fótaburður ásamt lítilsháttar göllum í höfuðburði

• Mjög góður fótaburður en einstaka greinilegir gallar (taktur og/eða

höfuðburður)

• Hreinn taktur, góður fótaburður en bakstífur

• Góður taktur og fótaburður en greinilega of stuttstígur að aftan

5 og 5.5

• Taktur meira og minna hreinn og án stöðugra eða stórra galla í höfuðburði

• Góður taktur en fótaburður í meðallagi, reiðmennska ágæt

• Góður fótaburður ásamt greinilegum göllum (svo sem í takti eða höfuðburði)

• Almennt hreinn taktur, hár og mikill fótaburður en spenntur og gangur stirður

• Stöðugt lítilsháttar klárgengt ásamt góðum fótaburði

Tæplega meðalsýning

4 og 4.5

• Litlir en ítrekaðir taktgallar svo sem skeiðborið, klárgengt, upp á fótinn ásamt

almennt ágætum höfuðburði

• Hreinn taktur, meðal fótaburður en slæmur höfuðburður

• Hreinn taktur, stuttur lágur fótaburður, höfuðburður án galla

• Meðalfótaburður með einstaka stórum göllum (taktur eða höfuðburður)

Gölluð sýning

1 til 3.5

• Sífelldir taktgallar (klárgengt, upp á fótinn, víxlað, skeiðborið)

• Meira og minna hreinn taktur en hestur sýnir greinilega óhlýðni (t.d. upp úr

beisli eða tekur mjög á móti beisli)

• Greinileg óhlýðni

0

Sýning fer ekki fram

• ekkert tölt

 

 

Brokk

 

 

Almennt

Til viðbótar gæðum gangtegundarinnar skal brokköryggi einnig dæmt.

Reiðmennska og bendingar skulu einnig teknar til dóms.

Frádráttur

Draga má 0.5 til 2 frá fyrir:

• Hestur stekkur upp af brokki (fer eftir vegalengd sem hesturinn er

ekki á brokki)

• slæma reiðmennsku (slæmt jafnvægi, hendur festar á hnakk)

• gróf reiðmennsk (gult spjald)

Draga má 0,5 frá fyrir:

• gangskipting fer ekki fram á miðri langhlið

Draga má 2.0 frá fyrir:

• Einungis sýnt sem samsvarar einni langhlið

Ef minna en sem svarar einni langhlið er sýnt, er ekki gefin einkunn fyrir atriðið.

Ef brokkið er einungis sýnt á stuttum köflum er ekki hægt að gefa meira en 3,5.

Hækkun

Fyrir samræmisgóða sýningu (mjög falleg reiðmennska, hlýðinn hestur) má

hækka einkunn um 0,5.

Samsláttur

Mikilvægt: Það er mjög mikilvægt að átta sig á því af hverju samsláttur á sér

stað.

• Sé hesturinn ekki mjög kraftmikill og einkunnir eru í kringum meðallag

verður enginn frádráttur, þetta þýðir að sýningin er hvort sem er í

meðallagi, án tillits til ástæðu samsláttar.

• Sé hesturinn spenntur (sést á munni, hálsi, baki og taglburði) skal gefa

einkunn í lægri hluta skalans sem gefinn er upp fyrir það brokk sem sýnt

er. Jafnvel þótt fótaburður sé mjög góður er heimilt að draga allt að 1,0 af

einkunn.

• Brokki hesturinn frjálslega og kraftmikið er ekki dregið af einkunn, þrátt

fyrir samslátt.

Glæsileg sýning

9 til 10 ( fullkomin sýning)

Algerlega hreinn, jafn tvítaktur með góðu svifi.

• Mjög miklar, kraftmiklar og háar hreyfingar, við taum, spyrnugott,

fyrirhafnarlaust, kraftmikið, reiðmennska óaðfinnanleg. Geislar af stolti.

8 og 8.5

Hreinn taktur með góðu svifi

• Góður höfuðburður, rúmar, háar hreyfingar, falleg reiðmennska.

• Mjög háar og rúmar hreyfingar en fjöðrun ábótavant

• Mjög gott, fjaðrandi brokk, við taum, reiðmennska óaðfinnanleg en vantar upp

á glans eða útgeislun

Góð sýning

7 og 7.5

Hreinn taktur

• Góðar, háar og rúmar hreyfingar með góðum höfuðburði en lítilsháttar

jafnvægisvandamál (t.d. upp á fótinn í beygjum eða lítilsháttar fjórtaktur, þó

með svifi)

• Við taum, fjaðrandi en lítið meira en meðalfótaburður

• Hreinn taktur, rúmar hreyfingar, höfuðburður frjálslegur (opin kverk), öruggt,

rýmismikið brokk í góðum höfuðburði en ekki fjaðrandi

Meðalsýning

6 og 6.5

• Lítilsháttar fjórtaktur með svifi og háum, rúmum fótaburði

• Einstaka sinnum aðeins upp á fótinn ásamt góðum fótaburði

• Hreinn taktur, meðalfótaburður, við taum, góður höfuðburður

• Góður fótaburður en liggur á taum

5 og 5.5

• Lítilsháttar fjórtaktur og meðalfótaburður

• Af og til upp á fótinn og meðalfótaburður

• Meðalfótaburður, höfuðburður frjáls (opin kverk), brokkið gallalaust

• Hreinn taktur, stuttstígt með taumsambandi

• Öruggt brokk en liggur á taum

Tæplega meðalsýning

4 og 4.5

• Greinilegur fjórtaktur, greinilega brotið brokk

• Stöðugt upp á fótinn

• Liggur á frampartinum, dragnast áfram, mjög stuttstígt

• Meðalbrokk, óöruggt

Gölluð sýning

1 til 3.5

• Taktur mjög óöruggur (nálægt tölti)

• Fellur stöðugt af brokki

• Stöðugt og mikið upp á fótinn

• Mjög hratt kappreiðabrokk

0

Gangtegund ekki sýnd.

• Brokk sýnt skemur en sem nemur einni langhlið

 

Fet

 

Almennar athugasemdir

Hið fullkomna fet er virk, kraftmikil, stikandi gangtegund með góðu skrefi og

stórum hreyfingum. (t.d. stikar stórstígt með kraftmiklum hreyfingum, við taum,

áhrifamikið(„vá! áhrifin“))

Sé það nauðsynlegt til að hesturinn nái að hreyfa sig óþvingað er ekki

nauðsynlegt að hesturinn sé fullkomlega við taum. Hesturinn má ekki grúfa sig

of mikið. Reiðmennska og bendingar skulu einnig hafa áhrif á dóm.

Frádráttur

Draga má 0.5 til 2 frá fyrir:

• slæma reiðmennsku (slæmt jafnvægi, hendur festar á hnakk)

• gróf reiðmennsk (gult spjald)

Draga má 0,5 frá fyrir:

• gangskipting fer ekki fram á miðri langhlið

Draga má 2.0 frá fyrir:

• Einungis sýnt sem samsvarar hálfri langhlið

Ef minna en sem svarar hálfri langhlið er sýnt, er ekki gefin einkunn fyrir atriðið.

Hækkun

Fyrir samræmisgóða sýningu (mjög falleg reiðmennska, hlýðinn hestur) má

hækka einkunn um 0,5.

Góð sýning

9 og 10 (fullkomin sýning)

Hreinn, jafn fjórtaktur, góður hrynjandi

• fetið stórstígt, kraftmikið með útgeislun, stígur vel yfir framfótarspor, yfirlína

góð, fetið ákveðið, bóghreyfing frjáls, við taum.

8 og 8.5

Hreinn taktur, góður hrynjandi

• Kraftmikil hreyfing og bóghreyfing frjáls

• Stórstígt, langt yfir framfótarspor, að minnsta kosti meðalreistur, við taum

• Mjög stórstígt, kraftmikið, vel yfir framfótarspor en stilling heldur frjálsleg, (þ.e.

ekki nógu vel við taum)

Góð sýning

7 og 7.5

Taktur réttur.

• Góður hrynjandi

• Í meðallagi stórstígt, kraftmikið, við taum

• Stórstígt, kraftmikið en ekki alveg við taum

• Vel stórstígt, taumsamband stöðugt, en ekki nógu kraftmikið

Meðalsýning

6 og 6.5

Jafn fjórtaktur með a.m.k. meðalhreyfingum

• Rýmdarleg, stór, jöfn skref, en ekki kraftmikið

• Gott fet, við taum en öðru hvoru ójafnt

• Gott fet, en öðru hvoru grúfinn eða liggur á taumum

5 og 5.5

• Lítilsháttar taktvandamál af og til

• Nær rétt í framfótarspor, meðalstór skref

• Flýtir sér lítilsháttar, meðalstór skref

• Ágætlega skrefstór en vantar kraft

• Of lág reising ásamt jöfnum takti, langur

• Góður taktur og gott skref en grúfir sig

Tæplega meðalsýning

4 og 4.5

• Lítilsháttar taktvandamál (örlítið skeiðborið)

• Stuttstígt, dálítið klárgengt

• Flýtir sér

• Hægt og þungt / silalegt

• Taktur í lagi en höfuðburður losaralegur og hestur óeinbeittur, eða mjög lágur

höfuðburður

• Á löngum köflum fyrir aftan bita í höfuðburði

Gölluð sýning

1 til 3.5

• Klárgengt

• Mjög hægt og þungt, silalegt

• Nálægt skeiði, stíft

• Mjög stuttstígt að aftan

• Taumhaltur eða mjög ójafnt, sérstaklega þegar riðið er við taumsamband

• Stöðugt fyrir aftan bita í höfuðburði

0

Ekki sýnt.

• Fet sýnt styttra en sem nemur hálfri langhlið

 

Stökk

 

Almennt

Markmiðið er þrítakta stökk með svifi.

Reiðmennska og bendingar knapa skulu einnig dæmdar.

Taki hestur ytra stökk skal tekið tillit til þess. Leiðréttingar á rétt stökk eru

dæmdar á eftirfarandi hátt:

Frádráttur

Draga má 0.5 til 2 frá fyrir:

• Hestur fer af stökki (fer eftir vegalengd sem hesturinn er ekki á

stökki)

• slæma reiðmennsku (t.d. taumatog eða jafnvægislaus, stíf áseta)

• gróf reiðmennsk (gult spjald)

• sett upp á ytra stökk:

0 innan tveggja skrefa með snyrtilegri leiðréttingu

-/- 0.5 fyrir fyrstu beygju

-/- 1.0 fyrir fyrstu langhlið

-/- 1.5 fyrir miðju fyrstu langhliðar

-/- 2.0 þarf á fyrstu langhlið að halda til leiðréttingarinnar

Draga má 0,5 frá fyrir:

• gangskipting fer ekki fram á miðri langhlið

Draga má 2.0 frá fyrir:

• Einungis sýnt sem samsvarar einni langhlið

Sé sýnt minna en sem svarar einni langhlið er engin einkunn gefin.

Hækkun

Fyrir samræmisgóða sýningu (mjög falleg reiðmennska, hlýðinn hestur) má

hækka einkunn um 0,5.

_ Fjórgangs- og fimmgangshross eru dæmd á sömu forsendum!

Glæsileg sýning

9 til 10 (fullkomin sýning)

Mjúkur, greinilegur þrítaktur.

• Hátt og rúmt stökk, stekkur eins og uppá við (uphill), í mjög góðu jafnvægi,

mjúkar og rúmar hreyfingar, við taum, reiðmennska framúrskarandi, safnað,

fjaðrandi, fyrirhafnarlaust, útgeislun glæst.

8 og 8.5

Hreinn þrítaktur.

• Stórt, rúnnað, uppávið stökk, fallega riðið, við taum, jafnvægi gott.

• Mjúkt stökk í góðu jafnvægi með greinilegu svifi, við taum.

Góð sýning

7 og 7.5

• Góður taktur, stekkur yfir mikilli jörð, höfuðburður frjáls (opin kverk)

• Vel undir stjórn, góður fótaburður framfóta, góður höfuðburður, svifi ábótavant

• Góður taktur, vel undir stjórn, uppávið, meðal fótaburður, við taum

• Gott svif, samræmi gott og við taum, en ekki nógu mikið uppávið (uphill)

Meðalsýning

6 og 6.5

• Lítilsháttar fjórtaktur, uppá við, góður burður

• Gott svif, góður fótaburður, en aðeins of hratt

• Hreinn taktur, meðal fótaburður, góður burður

• Stutt stökk, ekki nægilega upp á við en vel undir stjórn og við taum

• Góðar hreyfingar, svif en of höfuðburður of frjáls (opinn í kverk)

5 og 5.5

• Lítilsháttar fjórtaktur, undir stjórn, sæmilega upp á við, frjálslegur í höfuðburði

(opinn í kverk)

• Góður taktur, meðal hreyfingar, höfuðburður frjáls

• Góðar hreyfingar, fjórtaktur, aðeins of hratt

• Gott svif en stuttstígt og á frampartinum / liggur á taum

Tæplega meðalsýning

4 og 4.5

• Stöðugur greinilegur fjórtaktur, gengur að aftan

• Of hratt og ekki undir stjórn, hestur óhlýðinn

• Stirt stökk en með nokkuð hreinum takti

• Vandamál í beygjum

• Flatt eða mjög stuttstígt stökk

Gölluð sýning

1 til 3.5

• Víxlar oft

• Skeiðborið stökk

• Hestur mjög óhlýðinn, hálfrýkur, togar í taum, kappreiðastökk

• Hestur helst ekki stökki, einkum ekki í beygjum

• Mikill fjórtaktur og máttlaust stökk (gengur að aftan)

0

Stökk ekki sýnt

• Stökk sýnt skemur en sem ne

 

Skeið (hringvöllur)

 

Almennar athugasemdir

Skeið er yfirferðargangur með hliðstæðum fótstuðningi og svifi þess á milli. Skeið

skal ríða á kappreiðahraða og svif skal vera auðsýnilegt.

Í nánd við beygjuna sem er á kaflanum eftir miðju skammhliðar og upphafs

langhliðar skal leggja hestinn fyrirhafnarlaust en af krafti af stökki á fljúgandi

skeið. Á skeiði skal hesturinn auka hraðann og skeiða af öryggi alla leiðina án

óhóflegra ábendinga frá knapa. Eftir skeiðið skal hestinum riðið í beygjuna á

yfirvegaðan máta.

Vegalengd: á hringvelli heil langhlið eða á P-velli merkt vegalengd

Dómurinn á að byggjast á heildarsvip sýningarinnar (allt frá byrjun þegar sett er

upp á stökk og þangað til að hægt er niður í lokin) þar sem bæði gæði

gangtegundarinnar og tæknileg útfærsla eru höfð til hliðsjónar.

Þættir sem geta haft jákvæð áhrif á dóminn:

Hreinn taktur og góður fótaburður – Vel útfærðar gangskiptingar og frábærlega

riðinn skeiðsprettur – Mikill hraði og kraftur – Stöðugleiki (fleiri en ein vel heppnuð

atrenna)

Þættir sem geta haft neikvæð áhrif á dóminn:

Óhreinn taktur – Lítið svif – Gróf og/eða glannaleg reiðmennska, harðar

leiðréttingar, óhóflegar taumábendingar og/eða hvatning frá fæti/písk – Skortir

kraft í niðurtöku á skeið – Tekur of langan tíma að leggjast á hreint skeið –

Niðurtaka of snemma (hesti skal ekki riðið í gegnum beygju á skeiði) – Hægir

niður of snemma – Skortur á hraða – Stirðleiki, stutt skref – Óstöðuleiki (aðeins

ein vel heppnuð atrenna)

Fastur frádráttur

Þegar hestur er lagður á skeið fyrir miðju skammhliðar eða tekinn niður á skeið á

réttum stað en af annarri gangtegund en stökki skal draga 2,0 stig af einkunn.

Þegar hestur fer á kýrstökk eftir skeiðsprett skal draga 1,0 – 2,0 stig af einkunn.

Ef það er umtalsverður munur milli bestu og næst bestu atrennu skal draga af

einkunn þeirrar betri. Ef einkunnin fyrir næst bestu atrennuna er 0,0 skal draga

2,0 af.

Ef hestur er ekki enn kominn á hreint skeið þegar komið er tvær hestlengdir inn á

langhlið eða er ekki lengur á hreinu skeiði vegna niðurhægingar tveimur

hestlengdum fyrir lok langhliðar – er heimilt að dæma sem að heill sprettur hafi

verið sýndur en draga 0,5 – 1,5 af einkunn.

Ef að knapi fær gult spjald vegna grófrar reiðmennsku fyrir einhverja atrennu skal

heildareinkunn fyrir skeið aldrei vera hærri en 3,5.

Sýna þarf að minnsta kosti hálfa langhlið á hreinu skeiði til þess að geta fengið

einkunn. Fyrir sprett sem er a.m.k. hálf langhlið en nær ekki að vera heil langhlið

er hæsta mögulega einkunn 2,0.

SJÁ SKEMAMYND – FIMMGANGUR – TIL NÁNARI ÚTSKÝRINGA

Glæsileg sýning

9 til 10 (fullkomin sýning)

• öruggt, mjög hratt, stórstígt með góðu svifi, fyrirhafnarlaust, fullkominn sýning

8 og 8.5

• mjög hratt og öruggt en lágur fótaburður, fallega riðið

• skeið með háum, miklum fótaburði, kraftmikið en ekki mjög hratt

Góð sýning

7 og 7.5

• Góður hraði, öruggt en flatt og stuttstígt

• Kraftmikið í byrjun, öruggt en hægir á sér

• Þarf tíma til að ná fullum hraða en er þá mjög hraður

• Mjög hratt, löng og góð skref en lítilsháttar fjórtaktur

• Skeið með háum fótaburði en ekki mjög hratt

• Hraði rétt yfir meðallagi ásamt öruggum stórum skrefum og góðu svifi

• Mjög mikill hraði með lítilsháttar mistökum

Meðalsýning

6 og 6.5

• Öruggt, hraði í meðallagi en hreyfingar flatar

• Góð niðurtaka, vantar upp á kraft, heldur ekki hraða

• Góður hraði, stirðgengur, framþungt, þarf mikla aðstoð frá knapa

• Lítilsháttar upp á fótinn af og til en hraði mjög góður

• Öruggt og hratt en með litlu svifi

5 og 5.5

• Hraði í meðallagi, öruggt, stuttstígt

• Góður hraði, stirt, of framþungt, afturfótarskref ójafnt

• Aðeins upp á fótinn en hraði góður

• Mjög fjórtaktaður, góður hraði með litlu svifi

• Góður hraði, óöruggt, höfuðburður of hár eða þarf á mikilli hjálp að halda

Tæplega meðalsýning

4 og 4.5

• Hraði ásættanlegur, stuttstígt

• Nokkuð góður hraði, stirt og framþungt, ójafnt afturfótarskref

• Mikið upp á fótinn en hraði góður

• Mjög fjórtaktaður, meðlhraði með litlu svifi

• Góður hraði en mjög óöruggt

Gölluð sýning

1 til 3.5

• Skeiðar einungis hálfa umbeðna vegalengd á ásættanlegu skeiði

• Rétt ásættanlegur hraði

• Rétt meðalhraði, stirt og framþungt, ójafnt afturfótarskref

• Mikið upp á fótinn, meðalhraði

• Mjög fjórtaktað, ekki nógu hratt

• Meðalhraði en mjög óöruggt

• Mjög gróf reiðmennska (getur verið ástæða til að gefa gult spjald)

0

Gangtegund ekki sýnd.

• Ekkert skeið

• Of hægt

• Einungis tölt

• Blandar gangtegundum, víxlar

• Minna en hálf langhlið á ásættanlegu skeiði

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link