Breytingar til batnaðar
Minna var um áverka í munni keppnishesta á Landsmóti hestamanna og Íslandsmóti í ár. Umdeilt bann við notkun tungubogaméla hefur augljóslega haft áhrif á niðurstöður heilbrigðisskoðana nú að mati Sigríðar Björnsdóttur, dýralækni hrossasjúkdóma hjá MAST.
„Mest munar um að alvarlegir áverkar á kjálkabeini eru nánast úr sögunni hjá keppnishestum en einnig hefur dregið úr tíðni áverka í munnvikum og kinnum,“ segir Sigríður m.a. í viðtali sem hægt er að nálgast í 8. tölublaði Eiðfaxa sem kemur út lok vikunnar.
Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH