Brugguðu sérstakan Limsbjór
Forsala aðgöngumiða á hrossakjötsveislu Limsfélagsins verður í Guðmundarstofu, félagsheimili Fáks, fimmtudagskvöldið 19. febrúar frá kl. 20-22. Miðaverð er 5000 kr.
Hrossakjötsveislan fer fram á laugardagskvöldið 21. febrúar í félagsheimili Fáks í Víðidal.
,,Mikilvægt er að félagsmenn tryggi sér miða í forsölunni þar sem viðburðurinn er öllum opinn og mikil stemning er fyrir kvöldinu. Athugið að aðeins eru 150 miðar í boði,“ segir í tilkynningu frá Limsfélaginu,
,,Limsverjar eru búnir að leggja mikið í undirbúning og hafa m.a. fengið bruggverskmiðjuna Steðja til að brugga fyrir sig tvær tegundir af bjór sem verður seldur á hátíðinni. Annars vegar er það Limur lagerbjór og hins vegar Folamjöður, millidökkur fyrir lengra komna. Helstu drykkjuboltar félagsins smökkuðu bjórinn í Steðja og óhætt er að segja ða hér sé á ferðinni íslenskt eðalöl,“ segir þar jafnframt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH