Brynja hlaut reiðmennskuverðlaun FT
Verðlaunað er fyrir framúrskarandi reiðmennsku og framkomu með hesta sína, hvort sem er í keppnisgreinum eða á kynbótasýningum mótsins. Að öll framkoma sé til fyrirmyndar innan sem utan vallar, gagnvart hestum, starfsfólki og keppendum. Hestar skulu vera vel uppbyggðir og þjálfaðir.
Brynja Kristinsdóttir hlýtur að þessu sinni Reiðmennskuverðlaun FT
„Brynja er afar prúður knapi og kemur vel undirbúin til leiks. Hún sýnir fagmennsku, yfirvegun og metnað í hverju því sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún átti glæsilegar sýningar á kynbótabrautinni sem og í töltkeppni mótsins á Sunnu frá Haukagili á Hvítársíðu.
Reiðmennskan er falleg og sanngjörn og einkennist af nettum ábendingum og stöðugu sæti. Í sýningum hennar skín í gegn öryggi, einbeiting, kraftur og samhljómur knapa og hests, sem endurspeglar vandaða þjálfun og góða reiðmennsku. Hún ríður af sanngirni, virðingu og næmni og er fyrirmynd góðrar reiðmennsku Brynja sýnir ávallt kurteisi og prúðmennsku, jafnt innan vallar sem utan, og er öðrum knöpum til fyrirmyndar.
Brynja er sannarlega verðugur handhafi Reiðmennskuverðlauna FT.
Innilegar hamingjuóskir með Reiðmennskuverðlaun FT, Brynja“
Brynja hlaut reiðmennskuverðlaun FT
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars