Brýnt á reglum um barna- og unglingakeppni

  • 11. janúar 2013
  • Fréttir
Brýnt á reglum um barna- og unglingakeppni

Upprifjunarnámskeið Gæðingadómarafélags LH verður haldið á tveim stöðum í mars mánuði. Annars vegar sunnudaginn 10. mars á félagssvæði hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ frá kl. 10–16 og hins vegar á Hólum í Hjaltadal þriðjudaginn 26. mars frá kl. 18–22.

Þema námskeiðanna er:

Barna og unglingakeppni – hægt tölt  – Lög og reglur

Í tilkynningu frá fræðslunefnd GDLH eru dómarar hvattir til að fara vel yfir lög og reglur sem og leiðara fyrir námskeiðið þar sem tekið verður próf í reglupakkanum. „Nánari upplýsingar um námskeiðin verða auglýst síðar. ATH: Sendur verður út CD diskur á næstu dögum til þess að dæma, skil á diski verður að vera fyrir fyrra námskeiðið. Leiðbeiningar um skil munu fylgja disknum,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link