Bylting í hrossarækt: Klónun á Náttfara frá Ytra-Dalsgerði hafin
Það hefur lengi verið draumur margra ræktenda að fá tækifæri til að nota til ræktunar að nýju hinn goðsagnakennda stóðhest, Náttfara frá Ytra-Dalsgerði. Nú er sá draumur loks að verða að veruleika, en í morgun hófst formlega undirbúningur að klónun þessa sögufræga hests.
Að sögn tæknimanna og sérfræðinga fannst nýlega afar vel varðveitt sýni af taglhári úr Náttfara þar sem bæði frumur og erfðaefni reyndust ósnortin. Með nýjustu tækni í erfðavísindum og svokallaðri „hrað-frumuskiptingu“ (e. rapid cellular acceleration) er áætlað að Náttfari-klónið verði orðið fullvaxta í júlí og geti tekið á móti hryssum strax í sumar. Þetta þýðir að ræktendur geta brátt fengið beint blóð úr þessum mikla ættföður í stóðin sín á ný.
Þessi ótrúlegi áfangi er án efa einn sá stærsti í sögu íslenskrar hrossaræktar. Til að fagna þessum tímamótum hefur Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) ákveðið að slá upp heljarinnar veislu. Öllum hestamönnum og áhugafólki um hrossarækt er því boðið til fagnaðar í höfuðstöðvum RML í Reykjavík í dag, 1. apríl, milli klukkan 14:00 og 17:00.
Líkt og tilefnið gefur til kynna verður ekkert til sparað. Til að fagna almennilega mun RML bjóða gestum og gangandi upp á ískalt freyðivín og hágæða kavíar á meðan farið verður yfir klónunarferlið og hægt verður að panta tolla fyrir sumarið.
Við hvetjum alla ræktendur til að mæta og skála fyrir Náttfara!
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Þórarinn og Hrímnir/Hestklettur sigurvegarar
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu